gototopgototop

hradlest-nemendavef-innskraning

Hraðlestur er lykill að velgengni

Það að hafa náð færni í að lesa hraðar mun auðvelda þér alla upplýsingaöflun til frambúðar.  Hvort sem þetta eru skýrslur í vinnu eða kennslubækur í námi.

"Ég get tvímælalaust mælt með þessu námskeiði fyrir hvern þann sem þarf að komast yfir ógrynni upplýsinga á mettíma og þekkja innihald þeirra vel.” - Aldís, 27 ára greinandi á Verðbréfamarkaði

Wiki-orð vikunnar..

Sumar 2013 - Námið tekur minni tíma þegar þú hefur setið hraðlestrarnámskeið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
sumar13-header

Nú er sumardagskráin að verða klár og skráningar hafnar á fyrstu sumarnámskeiðin - enda  námsmenn á fullu að undirbúa nýtt skólaár - og ákveðnir að toppa námsárangurinn á næsta skólaári.

Hresstu upp á lestrarhraðann - festu markvissari lestrartækni í sessi - og þú átt meiri tíma fyrir þig í allt það skemmtilega.

Allir geta lært að lesa hraðar en þeir gera í dag - Allir... Hvort sem þú telur þig lesa hratt eða hægt - þú getur aukið lestrarhraðann og haldið lesskilningi eins góðum, jafnvel betri en áður. Ekki viss um að það sé rétt? - Kíktu þá á þetta myndskeið.  Af hverju að velja að lesa hægt þegar þú getur lesið hraðar?

Hvaða árangri máttu búast við?

Kíktu á þetta myndskeið en þar er komið inn á að það skipti ekki máli hvort þú lest hratt eða hægt, hvort þú eigir erfitt með að festa efnið í sessi eða skilur það vel - þá hefur þú tök á að lesa mikið hraðar en þú gerir í dag.  Hvaða árangri máttu búast við?

Ég er í háskólanámi og með börn á heimili. Ég hef átt sífellt erfiðara með að komast í gegnum allt námsefnið mitt.  Þegar ég kom á námskeiðið voru vorprófin að byrja og mjög stór hluti námsefnisins ólesinn vegna óvenju mikillar verkefnavinnu.  Ég var orðin mjög stressuð og bjóst ekki við að geta lesið nema brot af efninu.  Tæknin sem ég lærði hjálpaði mér að komast í gegnum næstum allt námsefnið fyrir prófin og skilningur var það góður að ég var á meðal hæstu nemenda í öllum kúrsunum. - Sigrún Halla Ásgeirsdóttir, 30 ára háskólanemi.

Toppaðu námsárangurinn og kíktu á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans
 
sumar-krakkar-header-450x

~ Hraðlestrarkrakkar - hraðlestur fyrir 10-12 ára hefst 12. júní ~

Viltu frekari upplýsingar um Hraðlestrarkrakka
 
...hve langt er síðan að þú uppfærðir lestrarkunnáttu þína?
Þú hefur nægan tíma - hættu að berja höfðinu við vegginn og skelltu þér á námskeið núna...

“Ég eyddi áður of löngum tíma í lestur námsefnis miðað við árangur. Eftir að "læra að lesa" upp á nýtt hef ég margfalt aukið námsárangur minn og líka aukið frítíma, sem er ekkert nema frábært.” - Ingunn Eyjólfsdóttir, 23 ára laganemi.

...hve langt er síðan að þú uppfærðir lestrarkunnáttu þína?

Þú uppfærir reglulega forritin í tölvunni og almenna þekkingu og færni á námskeiðum og í skóla... ...hve langt er síðan að þú uppfærðir lestrarkunnáttu þína? Meiri lestrarhraði - Meiri skilningur - Meiri tími - Meiri yfirsýn - eru allt einkunnarorð Hraðlestrarskólans.   Hraðinn í upplýsingasamskiptum nútímans kallar einfaldlega á meiri lestrarhraða hjá okkur... - Ertu að standast þær kröfur sem nám eða starf kallar eftir? - Ertu að klára verkefnin þín? - Ertu að finna tíma fyrir fjölskyldu eða vini?

“Ég las mjög hægt sem hafði mikil áhrif á afköst í námi. Nú hef ég um það bil fjórfaldað hraðann minn og skil betur það sem ég les. Ég finn strax, eftir 3 vikur, að ég hef meiri tíma til að leika með börnunum mínum.” - Hafdís Erla Árnadóttir, 32 ára nemi.

Nánar...
 
Hvað lærir þú á hraðlestrarnámskeiði?

Hvað lærir þú á hraðlestrarnámskeiði?

“Ég bætti lestrarhraða minn heilmikið, bæði í þyngri og léttari texta. Þá náði ég enn betri tökum á að draga aðalatriði fram í texta.” - Sigríður Valdimarsdóttir, 41 ára kennari.

Jón Vigfús Skólastjóri Hraðlestrarskólans við kennslu á hraðlestrarnámskeiði

Á hraðlestrarnámskeiðinu lærir þú ekki bara að margfalda lestrarhraða þinn. Lestur þinn verður mun markvissari og

einbeittari. Hugur þinn nær mun betur að halda einbeitingu í öllu lesefni og er sérstaklega tekið á því hvernig við getum undirbúið okkur fyrir þungan texta.

Það að geta tileinkað sér fljótt og vel þau atriði, sem máli skipta, hvort heldur þau eru í kennslubók, skýrslu, fagtímariti, dagblaði eða öðru lesefni, getur skipt sköpum fyrir þig. Þessi möguleiki mun opnast þér við góða ástundun á námskeiðinu. Einnig munu aukin afköst skapa þér ný tækifæri í námi og vinnu. Því er óhætt að segja að hraðlestrarnámskeið veiti þér forgjöf sem nýtist í öllum þáttum lífs þíns.

“Fyrir námskeiðið vildi ég aðeins bæta lestrarhraðann. En það sem kom mér mest á óvart var að ekki eingöngu les ég hraðar, heldur allt öðruvísi. Ég les með betri skilningi og kann mun betur að vinna úr efninu eftir lestur sem hefur í för með sér margfalt meiri skilning.” - Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.

Greinar sem vert er að skoða:

>> Hvað er hraðlestur?

>> Er hraðlestur erfiður?

>> Læknar hraðlestur lesblindu?

>> Er hægt að hraðlesa allt lesefni?

>> Er einhver lágmarksaldur inn á námskeiðið?

>> Hvernig getur hraðlestrarnámskeið hjálpað mér?

>> Hvernig getur hraðlestur hjálpað mér í náminu?

>> Hvernig getur hraðlestur hjálpað mér í vinnunni?

>> Hvers vegna lesum við hægt?

>> Við ábyrgjumst árangur hjá þér...

 

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Námsgreining fyrir þig...

augl-forsidu-namsgreining

Við ábyrgjumst árangur þinn

FRÍR PDF-bæklingur um KINDLE

Kindle-lestolvan

Skoðanakönnun

Hefur þú setið hraðlestrarnámskeið
 

Hverjir eru inni?

Það eru 3 gestir á síðunni núna

Í fréttum

Morgunblaðið 26.8.2006

Las 3.400 orð á mínútu og 27-faldaði leshraðann

...Magnús Már er sextán ára og segist hafa viljað reyna að auka lestrarhraðann áður en hann byrjaði í menntaskóla. (sjá grein)

Nánar...

Auglýsingar

Kynningarslóðir:
3 vikna námskeið
Hraðlestur á 3 vikum - fyrir þá sem vilja árangur STRAX.
Helgarnámskeið
Hartnær tvöföldun á lestrarhraða á 24 tímum - fyrir þá sem vilja árangur NÚNA.
Hvernig á að lesa námsbók?
LOKSINS - framhaldsnámskeið sem fer dýpra í námsbókalestur.
Hvernig á að nota iMindMap í námi?
LOKSINS - framhaldsnámskeið sem fer dýpra í glósutæknina.
SkráningUmsagnirHraðlesturNámsþjálfunNámskeiðinFjarnámNæstu námskeið
JoomlaWatch Stats 1.2.9 by Matej Koval