|
|
|

Nú er vetrardagskráin að þéttast hjá okkur og skráningar komnar á fullt - enda námsmenn á fullu að hefja nýja skólaönn - og ákveðnir að toppa námsárangurinn.
Hresstu upp á lestrarhraðann - festu markvissari lestrartækni í sessi - og þú átt meiri tíma fyrir þig í allt það skemmtilega.
Allir geta lært að lesa hraðar en þeir gera í dag - Allir... Hvort sem þú telur þig lesa hratt eða hægt - þú getur aukið lestrarhraðann og haldið lesskilningi eins góðum og áður. Af hverju að velja að lesa hægt þegar þú getur lesið hraðar?
“Ég er í háskólanámi og með börn á heimili. Ég hef átt sífellt erfiðara með að komast í gegnum allt námsefnið mitt. Þegar ég kom á námskeiðið voru vorprófin að byrja og mjög stór hluti námsefnisins ólesinn vegna óvenju mikillar verkefnavinnu. Ég var orðin mjög stressuð og bjóst ekki við að geta lesið nema brot af efninu. Tæknin sem ég lærði hjálpaði mér að komast í gegnum næstum allt námsefnið fyrir prófin og skilningur var það góður að ég var á meðal hæstu nemenda í öllum kúrsunum.” - Sigrún Halla Ásgeirsdóttir, 30 ára háskólanemi.
|
|
Toppaðu námsárangurinn og kíktu á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans
|
~ Settu námið í fluggírinn - er metnaður fyrir náminu?? ~
90 daga námsferli í fjarnámi - skráning er hafin
Vertu með markmiðin á hreinu – bættu skipulag – náðu stjórn á tímanum þínum – taktu á venjum sem halda aftur af þér – og taktu á þeim STRAX.
|
|
Viltu frekari upplýsingar um það hvernig þú tekur þátt í næsta 90 daga námsferli
|

NÝTT!! - Námsþjálfun - Taktu á námsvenjunum - skref fyrir skref og af alvöru
Það að taka ákvörðun um að hefja nám kallar á 2-8 ára skuldbindingu - fjárfestingin er fyrir lífstíð - og miklir fjármunir í húfi að allt gangi upp. Þegar svo er skiptir miklu máli að taka á náminu af alvöru - strax. Það er til rétt leið og röng leið fyrir þig að læra - sú leið getur verið mjög persónubundin. Það er til réttar venjur og rangar venjur ef þú vilt ná árangri - hvaða venjur stjórna þér?
Á síðustu 6 árum hefur Jón Vigfús Bjarnason, Kennari Hraðlestrarskólans og námsþjálfari, sérhæft sig í að þjálfa námsmenn í að tækla þær námsvenjur sem eru að halda aftur af þeim. Allar venjur, lestrarvenjur, tímavenjur, glósuvenjur og námsvenjur almennt - eiga sinn líftíma. Í 90% tilfella eru það þessar venjur sem halda aftur af námsfólki. Öllum venjum er hægt að breyta og móta að vild. Þeim á að breyta þegar þeirra líftími er liðinn. En hvernig? Þar kemur námsþjálfarinn þinn inn - líkt og einkaþjálfari gerir fyrir þig í líkamsrækt - þá kemur námsþjálfari þér á sporið og veitir þér það aðhald, þá yfirsýn, það sjálfstraust sem þú þarft til að verða markvissari námsmaður - án þess að fórna fjölskyldulífinu eða félagslífinu. En tryggja þér um leið að þeir fjármunir og sá tími sem þú fjárfestir í náminu þínu skili sér í þeim árangri sem þú leitar eftir.
Hefur þú velt fyrir þér hvernig þér gengi í námi ef þú hefðir einkaþjálfara til að kenna þér réttu handtökin í náminu - handtök sérsniðin að þínum styrkleikum.
|
|
Nánar...
|
“Ég eyddi áður of löngum tíma í lestur námsefnis miðað við árangur. Eftir að "læra að lesa" upp á nýtt hef ég margfalt aukið námsárangur minn og líka aukið frítíma, sem er ekkert nema frábært.” - Ingunn Eyjólfsdóttir, 23 ára laganemi.
...hve langt er síðan að þú uppfærðir lestrarkunnáttu þína?
Þú uppfærir reglulega forritin í tölvunni og almenna þekkingu og færni á námskeiðum og í skóla... ...hve langt er síðan að þú uppfærðir lestrarkunnáttu þína? Meiri lestrarhraði - Meiri skilningur - Meiri tími - Meiri yfirsýn - eru allt einkunnarorð Hraðlestrarskólans. Hraðinn í upplýsingasamskiptum nútímans kallar einfaldlega á meiri lestrarhraða hjá okkur... - Ertu að standast þær kröfur sem nám eða starf kallar eftir? - Ertu að klára verkefnin þín? - Ertu að finna tíma fyrir fjölskyldu eða vini?
“Ég las mjög hægt sem hafði mikil áhrif á afköst í námi. Nú hef ég um það bil fjórfaldað hraðann minn og skil betur það sem ég les. Ég finn strax, eftir 3 vikur, að ég hef meiri tíma til að leika með börnunum mínum.” - Hafdís Erla Árnadóttir, 32 ára nemi.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |