Hraðlestur er lykill að velgengni
Það að hafa náð færni í að lesa hraðar mun auðvelda þér alla upplýsingaöflun til frambúðar. Hvort sem þetta eru skýrslur í vinnu eða kennslubækur í námi.
"Ég get tvímælalaust mælt með þessu námskeiði fyrir hvern þann sem þarf að komast yfir ógrynni upplýsinga á mettíma og þekkja innihald þeirra vel.” - Aldís, 27 ára greinandi á Verðbréfamarkaði
Skype - hafðu samband núna...
Wiki-orð vikunnar..
| Wikiorðabók: Orð vikunnar |
| »Orð vikunnar« (Wiktionary) |
Innskráning
| Ert þú að stjórna þínum venjum eða eru venjur þínar að stjórna þér? |
|
|
|
| Skrifað af: Jón Vigfús Bjarnason |
| Miðvikudagur, 09. september 2009 00:00 |
Ert þú að stjórna þínum venjum eða eru venjur þínar að stjórna þér?
Æ fingin skapar meistarann;...sannindi þessara orða er hvergi jafn auðsjáanleg og á fyrstu dögum hraðlestrarnámskeiðs. Því þeir sem eru að ná að sinna æfingum daglega og beita tækninni daglega við lestur finna vel hve auðvelt það er að skipta út gömlu lestrarvenjunni og færa sig yfir í nýja, mun markvissari lestrarvenju.
Venjur stjórna þér á hverjum degi.Þegar þú ferð í skólann, vinnuna, heim til þín, í búðina eða í raun hvert sem er, ferð þú þá alltaf sömu leið?? Ef þú ert eins og við hin þá gerir þú það og er það einfaldlega vegna þess að með tímanum hefur þú fundið þá leið sem hentar þér best. Minnsta umferðin, fæst ljósin, minnsta stressið ...og þannig gæti ég haldið áfram. Þú ert búin/n að koma þér upp ákveðinni venju sem hentar fyrir þessa leið. Þú lætur því stjórnast af ákveðnum venjum allan daginn.Það sem þú verður að velta fyrir þér er hvort þessar venjur hjálpi þér í daglegu amstri? Eða...
Eina leiðin til að gera út af við slæmar venjur er að.....búa til nýjar. Flóknara er það ekki. Og nýjar venjur verða til með endurtekningu. Með því að endurtaka ákveðna hegðun, hreyfingu, vinnu eða tækni, aftur og aftur, daglega, í að lágmarki 21 dag. Hér skiptir æfingin höfuðmáli.Venjulega þurfum við að finna það út sjálf hvaða venjur eru að halda aftur af okkur og hvað við getum gert til að bæta úr því. Á hraðlestrarnámskeiði færðu þessar upplýsingar frá okkur. Þú færð æfingarnar og það eina sem þú þarft að gera er að taka frá tíma á hverjum degi til að nýta þér þessar upplýsingar og taka æfingarnar. Þú stjórnar venjum þínum......enginn annar. Því aðeins þú getur breytt þeim venjum sem þú vilt ekki lengur nota og tileinka þér nýrri, betri, markvissari venjur sem auðvelda þér lífið á hverjum degi. Markmið dagsins:Veltu fyrir þér í dag hvort þú vitir um einhverjar venjur hjá þér sem megi bæta með einhverju móti og um leið hvernig og hvar þú getir sótt upplýsingar um það hvernig þú getur bætt úr þeim. Nánari fréttir um venjur og hvernig það megi skipta út og breyta venjum má finna í fréttabréfi okkar en ég mun halda áfram að fjalla um venjur á blogginu fljótlega. Ekki missa af því. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. september 2009 15:02 |
Í fréttum
Blaðið 7.9.2006Boðið upp á æviábyrgðÁ sex vikum er hægt að ná viðunandi valdi til frambúðar á nýrri hraðlestrartækni. Hraðlestrarskólinn býður uppá slík námskeið þar sem þátttakendur er kennd tækni við hraðlestur og leiðbeint hvernig hægt sé að viðhalda árangrinum. (sjá grein í PDF) |
| Nánar... |






