Hraðlestur er lykill að velgengni
Það að hafa náð færni í að lesa hraðar mun auðvelda þér alla upplýsingaöflun til frambúðar. Hvort sem þetta eru skýrslur í vinnu eða kennslubækur í námi.
"Ég get tvímælalaust mælt með þessu námskeiði fyrir hvern þann sem þarf að komast yfir ógrynni upplýsinga á mettíma og þekkja innihald þeirra vel.” - Aldís, 27 ára greinandi á Verðbréfamarkaði
Skype - hafðu samband núna...
Wiki-orð vikunnar..
| Wikiorðabók: Orð vikunnar |
| »Orð vikunnar« (Wiktionary) |
Innskráning
| Glósur - lykill að meiri kunnáttu og skilningi á lesefni - í vinnu eða námi... |
|
|
|
| Skrifað af: Jón Vigfús Bjarnason |
| Miðvikudagur, 16. september 2009 00:00 |
Glósur - lykill að meiri kunnáttu og skilningi á lesefni - í vinnu eða námi...Glósuvenjur... markmið
Þ egar við hugum að glósum úr lesefni þurfum við í fyrstu að gera okkur grein fyrir markmiði lesturs, afhverju erum við að lesa bókina, hvaða upplýsingar skipta máli, hvers vegna er verið að leggja áherslu á þetta efni, hvaða lykilhugtök er höfundur/kennari að leggja áherslu á o.s.frv....
Hugarkort eru mjög markviss leið að festa glósur, minnisatriði í sessi - t.d. með því að nota iMindMap í tölvunni
Sjá kynningu á hugarkortum frá hugmyndasmið hugarkortanna - Tony Buzan
Glósur eru í raun nauðsynlegur þáttur í að fá......hugann okkar til að festa upplýsingar í huga. Lestur er í eðli sínu mjög óvirk athöfn og við þurfum virka athöfn til að læra. Virk athöfn er t.d. að vinna verkefni, taka próf, svara spurningum, glósa, umræður, leiðbeina öðrum eru allt athafnir sem virkja hugann okkar að takast á við námsefnið og læra það, festa það í sessi. Lesturinn einn og sér gerir þetta ekki. Við þurfum að beita fleiri leiðum en bara þessari óvirku athöfn að lesa....
Þetta festir síðan efnið svo rækilega í sessi......að við búum nú yfir dýpri þekkingu en fæst með því að lesa bara efnið yfir. Nám felst í langflestum tilfellum í öllum þessum atriðum og því mikilvægt að við nýtum okkur það. Gerum verkefnin, sinnum glósunum og virkjum okkur í lestrinum með því að merkja við og spyrja út efnið. Nánari fréttir um glósur og hugarkort má finna í fréttabréfi okkar en ég mun halda áfram að fjalla um glósur á blogginu fljótlega. Ekki missa af því. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 16. september 2009 14:04 |
Í fréttum
Morgunblaðið 26.8.2006Las 3.400 orð á mínútu og 27-faldaði leshraðann...Magnús Már er sextán ára og segist hafa viljað reyna að auka lestrarhraðann áður en hann byrjaði í menntaskóla. (sjá grein) |
| Nánar... |






