Skype - hafðu samband núna...
Wiki-orð vikunnar..
| Wikiorðabók: Orð vikunnar |
| »Orð vikunnar« (Wiktionary) |
Innskráning
| Námskeið - Hvernig á að nota iMindMap í námi? - 15. okt. kl. 16 |
Námskeið - Hvernig á að nota iMindMap í námi? - 15. október kl. 16.00 - í samvinnu við Hugarkort.isNámskeiðið er sjálfstætt framhald af hraðlestrarnámskeiði en ekki er þörf á því að hafa setið 3 eða 6 vikna hraðlestrarnámskeið til að hafa not af þessu námskeiði. Það er þó engin spurning að þeir sem hafa setið hraðlestrarnámskeið fá meira út úr því vegna þess að hér er farið enn ítarlegar í þær glósuleiðir sem bent er á þar. Markmið námskeiðs......er að gera notanda iMindMap kleift að takast á við hvaða hvaða efni sem er og vinna hnitmiðað hugarkort út frá því efni. Hugarkort sem er síðan hægt að rifja upp með reglulegu millibili og þannig ýta við huganum. Nemandi notar sitt eigið námsefni og vinnur það heimanám sem honum hefur verið sett fyrir í skólanum - hann er því að slá tvær flugur - læra fyrir námskeiðið og læra fyrir skólann. Á námskeiðinu lærir þú:
Námskeiðsfyrirkomulag:Kennsludagur: 15. október - frekari upplýsingar má finna á www.hugarkort.is Staðsetning: Hafnarfirði - Námsflokkar Hafnarfjarðar - Miðstöð símenntunar. Kennsla fer fram í Menntasetrinu við Lækinn ( Gamli Lækjarskóli ) v/ Skólabraut. Tímasetning: 16.00 - 20.00 - 4 tímar í senn Fyrirkomulag: Hópurinn hittist einu sinni. Farið er í ýmsar tækniæfingar sem ætlað er að þjálfa glósutæknina og kennari fer síðan í gegnum efni er tengist hugarkortum, iMindMap-hugbúnaðinum, glósutækni, námstækni og annað efni sem tengist hugarkorti og glósum almennt. Verð:Almennt verð er 17.500 kr. - (11.500 kr. ef viðkomandi er með keypta útgáfu af iMindMap - kostar um 49GBP eða 9.000 kr.) Innifalið í námskeiðagjaldi:Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, iMindMap hugbúnaðurinn, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), vikulegar fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á. Tilboð fyrir þá sem sitja hraðlestrarnámskeið:Ef nemandi sem situr á hraðlestrarnámskeiði greiðir fyrir bæði námskeiðin í einu fær hann - Hvernig á að nota iMindMap í námi? á kr. 11.500 Ef nemandi sem situr á hraðlestrarnámskeiði situr - Hvernig á að nota iMindMap í námi? - innan 2 vikna frá útskrift fær hann námskeiðið á kr. 14.500
|


