gototopgototop

Hraðlestur er lykill að velgengni

Það að hafa náð færni í að lesa hraðar mun auðvelda þér alla upplýsingaöflun til frambúðar.  Hvort sem þetta eru skýrslur í vinnu eða kennslubækur í námi.

"Ég get tvímælalaust mælt með þessu námskeiði fyrir hvern þann sem þarf að komast yfir ógrynni upplýsinga á mettíma og þekkja innihald þeirra vel.” - Aldís, 27 ára greinandi á Verðbréfamarkaði

Skype - hafðu samband núna...

Wiki-orð vikunnar..

Innskráning



NÝTT!! - Helgarnámskeið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

NÝTT!! - HELGARNÁMSKEIÐ + 3 VIKNA ÆFINGARKERFI Í FJARNÁMI

Helgarnámskeið Hraðlestrarskólans er nýjung ætluð þeim er þurfa að fá grunnþekkingu í hraðlestrartækninni strax, um leið og lestrarhraði er hartnær tvöfaldaður á rétt rúmum sólarhring.  Helgarnámskeiðið hefur þó að leiðarljósi mikilvægi þess að byggja upp nýja markvissa lestrarvenju til framtíðar og leiðir því þátttakanda í gegnum 3 vikna æfingarferli í framhaldinu þar sem hann er að beita nýrri lestrartækni í um klukkustundar æfingakerfi á hverjum degi í að lágmarki 21 dag.  Námskeiðið hentar sérstaklega þeim er eiga erfitt með að sækja námskeið vikulega t.d. vegna búsetu eða mikils álags í vinnu eða námi. Farið er yfir nákvæmlega sama efni og á hinum hefðbundnu 6 vikna námskeiðum Hraðlestrarskólans.

Kennari leiðir þátttakendur í gegnum kennsluefnið á einni helgi - 4 klukkustundir hvorn dag. Á helgarnámskeiðinu fer kennari í gegnum grunntæknina, af hverju við lesum almennt svona hægt, hvernig hægt er að vel rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður, af hverju lestrarskilningur og lestraránægja eykst við að lesa hraðar, skoðar lestur mismunandi lesefnis, leiðir að finna aðalatriði með skjótum hætti, grunnþætti þess að glósa markvissar og mismunandi glósuleiðir í vinnu eða námi, lestur af tölvuskjá eða lófatölvum, hvernig halda megi yfirsýn yfir mikið lesefni, leiðir að halda meiri einbeitingu í lestri jafnvel undir miklu álagi, leiðir að betri undirbúningi fyrir kennslustundir og fundi, þar eru einnig farið í gegnum mismunandi  æfingar sem nota megi í framtíðinni, leiðir þannig þátttakendur inn í 3 vikna æfingakerfið og afhendir ítarleg námsgögn.

Eftir helgarnámskeiðið tekur við 3 vikna æfingarkerfi þar sem nemandi beitir nýrri lestrartækni daglega og festir hana í sessi til frambúðar. Þá fær nemandi aðgang að nemendavef  Hraðlestrarskólans þar sem hann hefur aðgang að æfingum og aukaefni. Nemandi getur þannig spólað tilbaka og rennt í æfingar eins oft og hann vill - gert er ráð fyrir að æfingar séu notaðar í að lágmarki í 21 dag en nemandi hefur þó aðgang að æfingum til frambúðar og getur því tekið upp æfingar hvenær sem er í framtíðinni.  Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali næstu 3 vikur, t.d. hægt að nota skáldsögur eða námsefni.  Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum.  Markvisst er unnið að því að hver nemandi sé að ná tvöföldun á lestrarhraða sínum  á helgarnámskeiðinu og hefur reynslan sýnt að það sé raunhæft markmið.

Algengur árangur: tvöföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 20-25% aukning á skilningi.  Hámarksárangur á lágmarkstíma.

Æviábyrgð fylgir helgarnámskeiðum Hraðlestrarskólans. Æviábyrgðin tryggir þér rétt til að sitja námskeið aftur þegar þú hefur meiri tíma án endurgjalds, hvort sem það er til að bæta grunninn enn frekar, skerpa kunnáttuna eða bara ná enn meiri árangri.


Verð

Almennt verð er 34.500 kr. (Námsmenn 28.500 kr.) - Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum. - ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti.

Innifalið í námskeiðagjaldi..

Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), aðgangur í gegnum vef að gögnum og æfingum á netinu, daglegar áminningar og fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum fyrstu 3 vikurnar, aðgangur að kennara og nemendavef eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á.

“"Ég hef nú þegar tvöfaldað leshraðann á tveimur dögum.  Ég er með samviskubit yfir því að borga svona lítið." - Guðmundur S. 34 ára Rafvirki.

Árangur á helgarnámskeiði..

Árangur á námskeiði helgina - 5. og 6. júní - á Akureyri

Laugardagur kl. 12.10 - Orðafjöldi á mínútu = 139 - Lestrarskilningur = 68%
Sunnudagur kl. 15.40 - Orðafjöldi á mínútu = 433 - Lestrarskilningur = 72%

...eða rúm þreföldun og aukinn lestrarskilningur á um 27 klukkustundum.

Kíktu á fleiri umsagnir frá þeim sem setið hafa helgarnámskeiðið:

“Ég vissi ekkert við hverju ég átti að búast. Þetta var frábært og miklu betra en ég þorði að vona. Þetta á eftir að nýtast mér ævilangt." - Eva Sigurðardóttir, 16 ára framhaldsskólanemi

“Námskeiðið stóðst væntingar mínar til fulls. Ég hef á 2 dögum náð að þrefalda leshraðann. Hlakka til að nýta mér tæknina í lögfræðinni." - Anna, 21 árs Lögfræðinemi

“Frábært, búinn að þrefalda hraða á einni helgi, set markið hærra núna og langar að lesa meira!" - Einar Oddur, 18 ára nemi í MA

“Mjög gott. Ég átti alls ekki von á að sjá svo mikinn árangur á svo stuttum tíma. Hélt í raun að ég hefði ágætan leshraða." - 51 árs skólastarfsmaður.

"Vonaðist til að auka lestrargetu og skilning að einhverju leyti en hafði ekki trú á því að þetta myndi gerast svona hratt. Snilld! Bíð spennt eftir að fara heim og halda áfram að lesa :-)" - Linda H., 30 ára nemi í HÍ

"Frábært námskeið, ég náði að tvöfalda lestrarhraðann og auka skilning á einu helgarnámskeiði. Mér fannst alltaf leiðinlegt að lesa en núna hlakka ég bara til að halda áfram." - Petrea Aðalheiður, 20 ára nemi.

"Ég náði að tvöfalda lestrarhraðann eftir eina helgi." - Karl Ásgeir Geirsson, 20 ára nemi

"Ég bjóst síst við því að það væri hægt að sexfalda lestrarhraðann á 2 dögum. Synd að hafa fattað að sækja þetta námskeið svona seint." - Jóhanna Hildur, 19 ára nemi í MA

"Ég hafði mínar efasemdir, sem hurfu eins og dögg fyrir sólu strax á fyrsta degi námskeiðisins.  Ég margfaldaði lestrahraða minn og því samhliða jókst skilningur minn á lesnum texta." - Diljá Helgadóttir, 28 ára nemi

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú hefur spurningar um hraðlestur og hraðlestrarnámskeið í síma 773-0100 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Skráning á hraðlestrarnámskeið
  1. Fornafn(*)
    Invalid Input
  2. Eftirnafn(*)
    Invalid Input
  3. Netfang(*)
    Invalid Input
  4. Sími 1(*)
    Invalid Input
  5. Sími 2
    Invalid Input
  6. Smelltu á það námskeið sem hentar þér...
  7. (*)















    Invalid Input
  8. Athugasemdir
    Invalid Input
  9. Afsláttarkóði
    Invalid Input
  10.   

 

Við ábyrgjumst árangur þinn

Kynning á námskeiði

Í fréttum

Blaðið 7.9.2006

Boðið upp á æviábyrgð

Á sex vikum er hægt að ná viðunandi valdi til frambúðar á nýrri hraðlestrartækni. Hraðlestrarskólinn býður uppá slík námskeið þar sem þátttakendur er kennd tækni við hraðlestur og leiðbeint hvernig hægt sé að viðhalda árangrinum. (sjá grein í PDF)

Nánar...

Auglýsingar

Kynningarslóðir:
3 vikna námskeið
Hraðlestur á 3 vikum - fyrir þá sem vilja árangur STRAX.
Helgarnámskeið
Hartnær tvöföldun á lestrarhraða á 24 tímum - fyrir þá sem vilja árangur NÚNA.
Hvernig á að lesa námsbók?
LOKSINS - framhaldsnámskeið sem fer dýpra í námsbókalestur.
Hvernig á að nota iMindMap í námi?
LOKSINS - framhaldsnámskeið sem fer dýpra í glósutæknina.

Skráðu þig á biðlistann okkar

..vertu í forgangi

Skráðu þig á biðlista og þá færðu fréttir af nýjum námskeiðum beint í pósthólfið þitt og ert í forgangi á ný námskeið.

Fornafn (*)

Invalid Input
Eftirnafn

Invalid Input
Netfang (*)

Invalid Input



Skrá mig fyrir fréttabréfinu..

..með á nótunum?

Viltu fá gullmola um hraðlestur, námstækni og annað er tengist lestri. Vertu þá áskrifandi að fréttabréfinu okkar - Hraðlestrarlykillinn.

Fornafn (*)

Invalid Input
Netfang (*)

Invalid Input



SkráningUmsagnirHraðlesturNámskeiðinFramhaldsnámskeiðNæstu námskeið
JoomlaWatch Stats 1.2.9 by Matej Koval