Þá er sumardagskráin að þéttast hjá okkur og skráningar komnar á fullt á þau námskeið sem komin eru á dagskrá. Hraðlestrarskólinn ætlar að brydda upp á þeirri nýjung þetta sumar að bjóða upp á sérstök helgarnámskeið víðsvegar um landið - enda hefur jafnan verið mjög góð eftirspurn eftir hraðlestrarnámskeiðinu yfir sumartímann á höfuðborgarsvæðinu enda námsmenn - í fríi - og ákveðnir að toppa námsárangurinn næsta haust.
“Ég er í háskólanámi og með börn á heimili. Ég hef átt sífellt erfiðara með að komast í gegnum allt námsefnið mitt. Þegar ég kom á námskeiðið voru vorprófin að byrja og mjög stór hluti námsefnisins ólesinn vegna óvenju mikillar verkefnavinnu. Ég var orðin mjög stressuð og bjóst ekki við að geta lesið nema brot af efninu. Tæknin sem ég lærði hjálpaði mér að komast í gegnum næstum allt námsefnið fyrir prófin og skilningur var það góður að ég var á meðal hæstu nemenda í öllum kúrsunum.” - Sigrún Halla Ásgeirsdóttir, 30 ára háskólanemi.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar sérstaklega þeim er þurfa að komast yfir mikið lesefni í vinnu eða námi. Námskeiðið hentar líka þeim sem vilja einfaldlega lesa meira - hvort sem þetta eru skáldsögur, ævisögur, handbækur eða annað. Þátttakendur á hraðlestrarnámskeiði lesa að jafnaði tvöfalt til þrefalt meira af bókum en þeir gerðu áður einfaldlega vegna þess að lesturinn er skemmtilegri, lesefnið áhugaverðara og þau hafa nú meiri tíma til að njóta bóka.
Meðalaldur nemenda okkar er 27 ára - en aldurshópurinn spannar alla frá 13 ára og til 83 ára. Þetta eru þó helst menntaskólanemar og háskólanemar sem sjá hag af því að lesa hraðar og markvissar en einnig mikið um skrifstofufólk og stjórnendur sem þurfa vinnu sinnar vegna að sitja mikið af fundum, á námskeiðum eða kynna sér mikið lesefni t.d. skýrslur, tölvupósta, handbækur o.s.frv.
“Námskeiðið hefur aukið áhuga minn á að lesa meira mér til skemmtunar, því áður las ég svo hægt að það var mikið mál að komast í gegnum ágætlega þykka bók. Námskeiðið mun án efa hjálpa mér í því háskólanámi sem ég byrja á í haust.” - 32 ára tilvonandi nemi.
Verð
Almennt verð er 34.500 kr. (Námsmenn 28.500 kr.) - Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum. - ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti.
Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), aðgangur í gegnum vef að gögnum og æfingum á netinu, fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum, aðgangur að kennara og nemendavef eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á.
“Námskeiðið bar tvímælalaust þann árangur sem ég vonaðist eftir og gott betur en það. Þjónusta til einstaklingins er frábær og skipulagið til fyrirmyndar. Ekki skemmdi það fyrir að fá alltaf súkkulaði. Námskeiðið margborgaði sig.” - Esther Ösp Valdimarsdóttir, 19 ára nemi.
Árangur nemenda lykilatriði
Hraðlestrarskólinn hefur frá upphafi lagt metnað sinn í að nemendur nái árangri - enda er það ein helsta ástæða fyrir góðum umsögnum þeirra eftir námskeiðið og um leið ein aðalástæða fyrir vinsældum námskeiðsins í gegnum tíðina.
“Gott námskeið sem á eftir að hjálpa mér mikið í framtíðinni.” ~ Stefán Helgi Jónsson, 29 ára Hagfræðingur.
“Ég sexfaldaði lestrarhraða minn á 3 vikum! frábært!” ~ Guðjón Bergmann, 34 ára rithöfundur, fyrirlesari og jógakennari.
“Ég las mjög hægt sem háði mér í vinnu og við lestur blaða og tímarita. Eftir sex vikna námskeið er ég mun fljótari að komast í gegnum það efni sem ég þarf að lesa í vinnunni.” ~ Atli Vilhjálmsson, 47 ára Þjónustustjóri.
6 vikna námskeið - meiri tími með kennara
Sex vikna hraðlestrarnámskeið. Almenn sex vikna hraðlestrarnámskeið eru haldin með reglulegu millibili á höfuðborgarsvæðinu. Þá er kennt einu sinni í viku, 2 klukkustundir í senn. Kennt er frá mánudegi til fimmtudags og er mismunandi upp á hvaða vikudag námskeið lendir. Alltaf er kennt sama vikudag og námskeið hefst á. Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum. Kíktu á frekari upplýsingar um 6 vikna námskeið.
Algengur árangur: þreföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 25-30% aukning á skilningi.
3 vikna námskeið - hámarksárangur á 14 dögum
Þriggja vikna hraðlestrarnámskeið eru svokölluð hraðnámskeið ætluð þeim sem vilja ná góðu valdi á hraðlestrartækninni með skjótum hætti. Frábær lausn þegar stutt er í próf, skil á stórum verkefnum eða bara þegar lítill tími er til stefnu. Farið er yfir nákvæmlega sama efni og á hinum hefðbundnu 6 vikna námskeiðum Hraðlestrarskólans. Kennt er einu sinni í viku, þrjár klukkustundir í senn. Alltaf er kennt sama vikudag og námskeið hefst á. Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali, t.d. hægt að nota skáldsögur eða námsefni. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum. Markvisst er unnið að því að hver nemandi sé að ná tvöföldun á lestrarhraða sínum og hefur reynslan sýnt að það sé raunhæft markmið. Kíktu á frekari upplýsingar um 3 vikna námskeið.
Algengur árangur: tvöföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 20-25% aukning á skilningi. Hámarksárangur á lágmarkstíma.
NÝTT!! - Helgarnámskeið - hartnær tvöföldun á 24 tímum
Í einkatímum undanfarin ár hef ég byggt upp aðferð til að tvöfalda lestrarhraða á innan við sólarhring og með tilkomu nýrra tæknilausna er nú komin leið fyrir mig að tryggja þátttakanda þann árangur sem hann leitar eftir með því að sitja hraðlestrarnámskeið - hvort sem hann ætlar sér að fjórfalda lestrarhraða eða tífalda hann. Vefurinn og sú nálgun sem nemandi fær við kennara í gegnum netið - gerir nemanda kleift að halda áfram með æfingar í framhaldi af námskeiði, og ná þannig að festa nýjan hraða í sessi til frambúðar. Ég mun síðan vera í daglegum samskiptum við þessa nemendur í gegnum tölvupóst - hringja í þau tvisvar í viku fyrstu tvær vikurnar - fylgjast með æfingatíma þeirra og ýta á þau að halda æfingum við og þá sérstaklega fyrstu 7-10 dagana - sem er einn helsti lykiltími námskeiðsins - til að þau séu að ná settu markmiði sínu. Kíktu á frekari upplýsingar um helgarnámskeið.
Við erum því ekki að draga úr kröfum okkar og metnaði gagnvart árangri nemenda - heldur eingöngu að nýta markvissari kennsluaðferðir og tæknilausnir til að auðvelda aðgengi að námskeiðinu - og tryggja nemanda þann árangur sem hann sækist eftir með því að sitja hraðlestrarnámskeiðið.
Slá tvær...nei, þrjár flugur í einu höggi
Nýttu tækifærið enn frekar með því að kíkja á - hina fullkomnu lærdómshelgi fyrir alla aðdáendur virkrar símenntunar. Hraðlestrarskólinn hefur á síðustu 32 árum byggt upp mikla reynslu af lestri, námi og námstækni og ætlum við því að gefa þér tækifæri til að ná enn meiri árangri.
Við byrjum helgina á föstudegi kl. 16 á námskeiði um það hvernig hægt er að nota hugarkort í námi og fylgir grunnútgáfa iMindMap með því námskeiði - höldum við síðan áfram á laugardegi og sunnudegi með markvissri hraðlestrarkennslu - og endum síðan á mánudegi með námskeiði frá kl. 16 um það hvernig eigi að lesa námsbækur og vinna betur úr þungu lesefni.
Ef þú vilt taka þátt í hinni fullkomnu lærdómshelgi skaltu skrá þig á biðlista fyrir lærdómshelgi og þegar við festum dagsetningu fyrir hana færðu strax póst - geri ráð fyrir að öll helgarnámskeið verði með þessu ívafi. Sjá frekari kynningu á lærdómshelgum, afsláttum og verði í valmynd.
Af hverju þarftu að lesa hraðar?
Ég er í skóla en vil ná meiri árangri
Þá hefur þú gott tækifæri nú að nýta sumarhlé í náminu til að sitja hraðlestrarnámskeið - og læra að lesa. Námið verður auðveldara og glósur verða markvissari. Við tökum sérstaklega á lestri námsbóka. Eftir námskeiðið tala nemendur um að einbeitingarleysi við lestur námsbóka heyri sögunni til - ástæðan einföld.....eins og þú munt komast að á námskeiðinu. Viltu fá tækifæri til að hafa meiri tíma í verkefni, hafa tök á að komast yfir allt lesefni sem þér er sett fyrir, jafnvel tvisvar eða þrisvar sinnum?? Tek á því á námskeiðinu. Viltu læra hvernig þú átt að kynna þér betur aðalatriði í námsbókum og kynna þér lykilhugtök? Því þetta er allt hluti af hraðlestrarnámskeiðinu. ~ fara tilbaka
"Ég trúði þessu ekki fyrr en bekkjarsystir mín sem var með mikinn skólaleiða kláraði námskeiðið og var allt í einu eina manneskjan sem var búin að læra fyrir tíma. Þá ákvað ég að skella mér og hef fundið fyrir því sama." ~ Sigurlaug, 19 ára nemi í MS
"Vinur minn fær alltaf mjög háar einkunnir og sagði mér (í trúnaði) að leyndarmálið hans væri Hraðlestrarskólinn. Ég er mjög metnaðargjörn og hef oft hugsað mér að koma á þetta námskeið, hann ýtti mér af stað. Ég hef þegar séð mun á einkunnum og hlakka til að sjá hvernig prófin í vor koma út." ~ 18 ára nemi
"Ég vissi í raun ekki alveg við hverju var að búast, en eftir námskeiðið las ég 4 sinnum hraðar og skilningur jókst til muna, sem og skipulag á námslestri." ~ Ásdís Sigurjónsdóttir, 25 ára nemi
"Árangur á námskeiðinu kom mér mikið á óvart. Ég trúði því ekki að það væri hægt að bæta lestrarhraða svona mikið á svo stuttum tíma. Það sem ég lærði í Hraðlestrarskólanum er strax byrjað að hjálpa mér í námi og annars staðar. Alveg hreint ótrúlegt, tæplega sjöfaldað hraðann á aðeins þrem vikum. Mæli eindregið með því." ~ Telma Dögg - 16 ára nemi
Ég er að fara aftur í skóla eftir langt hlé
Þetta er eitt besta upphafsskref sem hægt er að taka áður en farið er í nám aftur eftir langan tíma - einkum ef þú ert að fara í nám með vinnu og vilt halda einhverjum tíma eftir handa fjölskyldu eða vinum eftir að nám og vinna hefur tekið sitt. Sú kunnátta í því að takast á við þungan námstexta er þú lærir á námskeiðinu veitir þér gríðarlegt forskot í náminu - gefur þér tök á að ná meiri árangri - fyrr en ella. ~ fara tilbaka
"Ég var ekki með skýr markmið áður en ég byrjaði, vildi bara geta komist yfir allt námsefnið! - Hef eftir 3 vikur 3-faldað lestrarhraðann og lært nýja lestrartækni sem strax hefur skilað sér, er fljótari að tileinka mér það efni sem ég þarf að kunna og get lesið það oftar en 1-sinni." ~ Gerður B. Guðjónsdóttir, 40 ára kynningarfulltrúi
"Ég batt vonir við aukinn lestrarhraða og þá meiri frítíma. Eftir fyrsta tímann þrefaldaði ég hraðann og eftir 3. tímann var ég búin að fjórfalda hraðann. Svo að... jú, vonir mínar urðu að veruleika. Nú er bara að demba sér í námsefnið." ~ Hrefna Díana Viðarsdóttir, 31 árs Bókari/Nemandi
"Áður en ég sat námskeiðið var ég að drukkna í námsefni, átti erfitt með einbeitingu & mundi ekki það sem ég las, nú er þetta allt annað! Hef meiri frítíma & nýt námsins mun betur." ~ Íris Cochran Lárusdóttir, 23 nemi
“Ég las mjög hægt sem hafði mikil áhrif á afköst í námi. Nú hef ég um það bil fjórfaldað hraðann minn og skil betur það sem ég les. Ég finn strax, eftir 3 vikur, að ég hef meiri tíma til að leika með börnunum mínum.” ~ Hafdís Erla Árnadóttir, 32 ára nemi.
"Ég rúmlega tvöfaldaði lestrarhraða minn (199 orð á mínútu --> 524 oám) og skólinn hjálpaði mér að losna við ýmsar ranghugmyndir sem maður öðlaðist og vandi sig á í grunnskóla og framhaldsskóla. Mun bókað fara aftur á námskeiðið þegar kemur að því að fara í mastersnám, og þá nota aðferðirnar sem ég vildi að ég hefði kunnað í BA náminu." ~ Baldur Jóhann Þorvaldsson - 29 ára starfsmaður við ferðaþjónustu
Ég þarf að lesa mikið í vinnunni
Ertu í kröfuhörðu starfi? Skiptir það þig máli að hafa góða yfirsýn yfir þær upplýsingar sem skipta þig máli og þú ert að vinna með á degi hverjum? Þarftu að undirbúa þig fyrir fundi, lesa skýrslur, tölvupósta, handbækur, fræðsluefni og annað sem gerir þér kleift að takast betur á við daglegan rekstur hjá þér eða vinnu? Þegar fleiri verk vilja færast á færri hendur - og kröfur um aukna þekkingu og kunnáttu í starfi - aukast jafn hratt og raunin hefur verið undanfarin ár. Skiptir kunnátta eins og þessi lykilmáli í að veita þér það forskot sem þú þarft til að höndla auknar kröfur og takast á hendur meiri ábyrgð í daglegu starfi. ~ fara tilbaka
"Ég náði á þremur vikum nærri að fjórfalda lestrarhraðann. Það er umfram væntingar mínar, þótt ég ætli nú enn að gera betur." ~ Gunnhildur Arna - 34 ára Blaðamaður
"Hreint ótrúlegur árangur á stuttum tíma! Ég hef fjórfaldað lestrarhraða á 6 vikum og get nýtt það í minni vinnu og við skemmtilestur. Í raun aukin lífsgæði." ~ Bjarni Kjartansson, 51 árs stjórnandi.
“Frábært! Hefur opnað mér nýjar víddir í lestrinum - og hef ég þó alltaf lesið mikið.” ~ Guðrún Bergmann, 56 ára Framkvæmdastjóri.
“Námskeiðið opnaði augu mín fyrir þeim möguleikum sem eru til, til að auka færni í lestri með tækni og skipulagningu. Búin að vera lestrarhestur og námsmaður alla tíð...vildi að ég hefði drifið mig á námskeið hjá ykkur miklu fyrr!” ~ Anna Sigríður Þórðardóttir, 44 ára Hjúkrunardeildarstjóri og nemi í lýðheilsustjórnun
“Námskeiðið uppfyllti allar mínar væntingar. Fyrir námskeiðið vænti ég þess að geta tvöfaldað lestrarhraða minn. Eftir námskeiðið hafði lestrarhraði minn hátt í fjórfaldast.” ~ Sif Cortes, 41 árs Viðskiptafræðingur.
Mig langar að lesa meira af skáldsögum
Er hár bókastafli á náttborðinu? Er mikið ólesið í bókahillunni? Er Kiljan-safnið enn ólesið? Ertu búin/-n að lesa 100 bestu bækur allra tíma? Eftir hverju ertu að bíða? Eina leiðin til að komast í gegnum allt það lesefni sem þig langar að lesa á lífsleiðinni - hvað þá að lesa sumar bækur oftar en einu sinni - er að búa yfir markvissari lestrarfærni og á hraðlestrarnámskeiði ertu að læra aðferð sem hægt er að beita með auðveldum hætti - í hvaða texta sem er. Skáldsögur verða áhrifaríkari og meira spennandi - af því að það er auðveldara að halda einbeitingu og efnið verður meira lifandi. Þú ert fljótari að finna gullmolana sem þú vilt lesa aftur og aftur - bækur sem þú vilt leyfa þér að njóta betur og bókstaflega smjatta á hverju orði. ~ fara tilbaka
"Ég var komin með háan stafla af bókum sem mig langaði að lesa, en hafði engan tíma til. Eftir að hafa fjórfaldað leshraðann á námskeiðinu verð ég fljót að klára hann." ~ Erla Filipía - 19 ára nemi í MR
“Námskeiðið hefur aukið áhuga minn á að lesa meira mér til skemmtunar, því áður las ég svo hægt að það var mikið mál að komast í gegnum ágætlega þykka bók. Námskeiðið mun án efa hjálpa mér í því háskólanámi sem ég byrja á í haust.” ~ 32 ára tilvonandi nemi.
“Tilfinning mín fyrir námskeiðinu er mjög jákvæð. Stór bókastafli er ekki lengur á náttborðinu. Námskeiðið hefur svo sannarlega borið þann árangur sem ég óskaði eftir. Og ég sé bara fram á meiri hraða í framtíðinni.” ~ Hafdís Ósk Jónsdóttir, 36 ára Heilsunuddari.
“Áhugi minn á lestri stórjókst við að lesa á meiri hraða. Mjög ánægður með skólann.” ~ Róbert, 27 ára hópstjóri.
“Lengi hefur mig langað að bæta lesturinn en ekki fundið tíma. Eftir uppörfun frá ættingjum fór ég á stúfana og varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég hef rúmlega tvöfaldað hraðann og er ánægð með það.” ~ Edda Emilsdóttir, 74 ára húsmóðir.