gototopgototop
NÝTT!! - Húsavík - Helgarnámskeið - 9. og 10. október Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Húsavík - Helgarnámskeið - 9. og 10. október, kl. 12.00

Kennsludagar: Laugardagur 9. október og Sunnudagur 10. október

Staðsetning: Húsavík - Þekkingarnet Þingeyinga - Hafnarstræti 3

Tímasetning: 12:00-16:00

Fyrirkomulag: Hópurinn hittist þessa einu helgi.  Á helgarnámskeiðinu fer kennari í gegnum grunntæknina, af hverju við lesum almennt svona hægt, hvernig hægt er að vel rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður, af hverju lestrarskilningur og lestraránægja eykst við að lesa hraðar, skoðar lestur mismunandi lesefnis, leiðir að finna aðalatriði með skjótum hætti, grunnþætti þess að glósa markvissar og mismunandi glósuleiðir í vinnu eða námi, lestur af tölvuskjá eða lófatölvum, hvernig halda megi yfirsýn yfir mikið lesefni, leiðir að halda meiri einbeitingu í lestri jafnvel undir miklu álagi, leiðir að betri undirbúningi fyrir kennslustundir og fundi, þar eru einnig farið í gegnum mismunandi æfingar sem nota megi í framtíðinni, leiðir þannig þátttakendur inn í 3 vikna æfingakerfið og afhendir ítarleg námsgögn. - Sjá meiri upplýsingar um helgarnámskeið Hraðlestrarskólans


Verð

Almennt verð er 34.500 kr. (Námsmenn 28.500 kr.) - Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum. - ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar sérstaklega þeim er eiga erfitt með að sækja námskeið vikulega t.d. vegna búsetu eða mikils álags í vinnu eða námi. Farið er yfir nákvæmlega sama efni og á hinum hefðbundnu 6 vikna námskeiðum Hraðlestrarskólans.

Innifalið í námskeiðagjaldi..

Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), aðgangur í gegnum vef að gögnum og æfingum á netinu, daglegar áminningar og fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum fyrstu 3 vikurnar, aðgangur að kennara og nemendavef eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á.

“"Ég hef nú þegar tvöfaldað leshraðann á tveimur dögum.  Ég er með samviskubit yfir því að borga svona lítið." - Guðmundur S. 34 ára Rafvirki.

Árangur á helgarnámskeiði..

Árangur á námskeiði helgina - 5. og 6. júní - á Akureyri

Laugardagur kl. 12.10 - Orðafjöldi á mínútu = 139 - Lestrarskilningur = 68%
Sunnudagur kl. 15.40 - Orðafjöldi á mínútu = 433 - Lestrarskilningur = 72%

...eða rúm þreföldun og aukinn lestrarskilningur á um 27 klukkustundum.

Námskeiðið haldið í samvinnu við Þekkingarnet Þingeyinga:

husavik_125x89Þekkingarnet Þingeyinga -  Kennsla fer fram í Hafnarstétt 3, Húsavík.

Síminn þar er 464-5100  Heimasíða þeirra á http://www.hac.is

 

 

 

"Vonaðist til að auka lestrargetu og skilning að einhverju leyti en hafði ekki trú á því að þetta myndi gerast svona hratt. Snilld! Bíð spennt eftir að fara heim og halda áfram að lesa :-)" - Linda H., 30 ára nemi í HÍ

Skráning á hraðlestrarnámskeið
  1. Fornafn(*)
    Invalid Input
  2. Eftirnafn(*)
    Invalid Input
  3. Netfang(*)
    Invalid Input
  4. Sími 1(*)
    Invalid Input
  5. Sími 2
    Invalid Input
  6. Smelltu á það námskeið sem hentar þér...
  7. (*)















    Invalid Input
  8. Athugasemdir
    Invalid Input
  9. Afsláttarkóði
    Invalid Input
  10.   

Kíktu á fleiri umsagnir frá þeim sem setið hafa helgarnámskeiðið:

“Ég vissi ekkert við hverju ég átti að búast. Þetta var frábært og miklu betra en ég þorði að vona. Þetta á eftir að nýtast mér ævilangt." - Eva Sigurðardóttir, 16 ára framhaldsskólanemi

“Námskeiðið stóðst væntingar mínar til fulls. Ég hef á 2 dögum náð að þrefalda leshraðann. Hlakka til að nýta mér tæknina í lögfræðinni." - Anna, 21 árs Lögfræðinemi

“Frábært, búinn að þrefalda hraða á einni helgi, set markið hærra núna og langar að lesa meira!" - Einar Oddur, 18 ára nemi í MA

“Mjög gott. Ég átti alls ekki von á að sjá svo mikinn árangur á svo stuttum tíma. Hélt í raun að ég hefði ágætan leshraða." - 51 árs skólastarfsmaður.

"Frábært námskeið, ég náði að tvöfalda lestrarhraðann og auka skilning á einu helgarnámskeiði. Mér fannst alltaf leiðinlegt að lesa en núna hlakka ég bara til að halda áfram." - Petrea Aðalheiður, 20 ára nemi.

"Ég náði að tvöfalda lestrarhraðann eftir eina helgi." - Karl Ásgeir Geirsson, 20 ára nemi

"Ég bjóst síst við því að það væri hægt að sexfalda lestrarhraðann á 2 dögum. Synd að hafa fattað að sækja þetta námskeið svona seint." - Jóhanna Hildur, 19 ára nemi í MA

Síðast uppfært: Föstudagur, 13. ágúst 2010 13:30
 

Við ábyrgjumst árangur þinn

SkráningUmsagnirHraðlesturNámskeiðinFramhaldsnámskeiðNæstu námskeið
JoomlaWatch Stats 1.2.9 by Matej Koval