Skype - hafðu samband núna...
Wiki-orð vikunnar..
| Wikiorðabók: Orð vikunnar |
| »Orð vikunnar« (Wiktionary) |
Innskráning
| Hafnarfjörður - 6 vikna námskeið - hefst 22. september kl. 20 |
|
|
|
Hafnarfjörður - 6 vikna námskeið - hefst 22. september, kl. 20.00Kennsludagar: Miðvikudagar - 22. september - 29. september - 6. október - 13. október - 20. október- 27. október Staðsetning: Hafnarfirði - Námsflokkar Hafnarfjarðar - Miðstöð símenntunar. Kennsla fer fram í Menntasetrinu við Lækinn ( Gamli Lækjarskóli ) v/ Skólabraut. Tímasetning: 20:00-22:00 Fyrirkomulag: Hópurinn hittist einu sinni í viku, á sama vikudegi og námskeið hefst á. Farið er í ýmsar tækniæfingar sem ætlað er að þjálfa hraðlestrartæknina og kennari fer síðan í gegnum efni er tengist hraðlestri, námstækni, glósutækni og annað efni sem tengist lestri almennt. -Sjá meiri upplýsingar um 6 vikna námskeið hér VerðAlmennt verð er 34.500 kr. (Námsmenn 28.500 kr.) - Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum. - ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti. Innifalið í námskeiðagjaldi..Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), aðgangur í gegnum vef að gögnum og æfingum á netinu, vikulegar fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur, árangursábyrgð, 36 mánaða ánægjuábyrgð og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á.
“Námskeiðið bar tvímælalaust þann árangur sem ég vonaðist eftir og gott betur en það. Þjónusta til einstaklingins er frábær og skipulagið til fyrirmyndar. Ekki skemmdi það fyrir að fá alltaf súkkulaði. Námskeiðið margborgaði sig.” - Esther Ösp Valdimarsdóttir, 19 ára nemi.
|
| Síðast uppfært: Mánudagur, 06. september 2010 15:12 |





