Skype - hafðu samband núna...
Wiki-orð vikunnar..
| Wikiorðabók: Orð vikunnar |
| »Orð vikunnar« (Wiktionary) |
Innskráning
~ Settu námið í fluggírinn - frá 10. september ~Vertu með markmiðin á hreinu – bættu skipulag – náðu stjórn á tímanum þínum – taktu á venjum sem halda aftur af þér – og taktu á þeim STRAX. Við eigum eftir að bæta við mikið af upplýsingum hér - fylgstu því vel með - festu þér tilboðsverð strax með því að skrá þig núna - og ekki verður rukkað fyrir 90 daga námsferlið fyrr en 10. september.
Framkvæmd og eftirfylgni í 90 daga ásamt vikulegum veffundum um nám, venjur, tímastjórnun o.fl.
Við leitum nú að metnaðargjörnum nemendum sem vilja taka þátt í fyrsta 90 daga námsferlinu - Nemendur sem vilja toppa námsárangur sinn á 90 dögum - frá og með 10. september. Inni í ferlinu er vikulegur veffundur þar sem fjallað er um markmiðasetningu, tímastjórnun, hvernig á að vinna í kennslustund, hvernig við tökumst á við námstexta, hvernig við eigum að haga prófundirbúningi, hvernig við tökum próf, skoðum námsstíla og mismunandi námsleiðir, sjálfspróf o.fl.
Þú ert að taka frá um 20 mínútur á dag - til að vinna grunnvinnu með námsfélaga - þar fyrir utan ertu að sinna þínu námi en ert að spara þér um 60 - 120 mínútur á dag með því að nýta tímann betur. Öll vinna fer fram í gegnum netið og því skiptir staðsetning þín á landinu engu máli. Þú ert með þinn eigin námsþjálfara - en fyrir aðeins brot af raunverulegum kostnaðiVið þekkjum öll hve mikilvægt það er að hafa einkaþjálfara í líkamsrækt, einkakennara í einstaka greinum, aðila sem leiðir okkur í gegnum grunnatriði og heldur okkur við efnið, fylgist með okkur. Í 90 daga námsferlinu ertu að fá eigin námsþjálfara - en greiðir þó eingöngu lítið brot af því sem alvöru námsþjálfari kostar þig. Þinn námsþjálfari heldur þér við efnið - minnir þig á markmiðin - hvetur þig áfram - ýtir undir meiri einbeitingu og árangur í náminu þínu. Hvernig er þetta hægt...? Með samtakamætti nemenda og skýrum en einföldum verkferlum færðu lykilinn að meiri árangri í náminu - um leið og þú færð tök á að eiga líf utan náms - sinna fjölskyldu, vinum, íþróttum, áhugamálum - eða bara að slaka á og hlaða batteríin.
90 dagar til að toppa námsárangurinn - hefst næst 10. septemberÞrátt fyrir að hér sé um ákveðna tilraun að ræða er Hraðlestrarskólinn ákveðinn að halda svona 90 daga námsferla í upphafi anna - 10. janúar og 10. september - vegna þess frábæra árangurs sem svona ferli hefur sýnt erlendis. ...og hvað kostar þetta??Upplýsingarnar sem þú færð á þessum veffundum væri auðvelt að selja í svipuðu formi fyrir um 5.000 kr. hvern tíma eða um 60.000 í heildina.Eftirfylgnin sem þú færð hér erum við að selja í námsþjálfun okkar á um 25.000 kr. fyrir mánuðinn eða 75.000 kr. í heildina.Þar sem við nýtum samtakamátt nemenda, notum vefinn til að kenna og beitum mjög skipulögðum og einföldum verkferlum þarftu ekki að hafa áhyggjur af því að greiða svo mikið - en......samt af fá allan pakkann...
Sérstakt kynningartilboð núna er 950 kr. á viku - eða 12.350 kr í heildina - og allt innifalið.- Þetta verður ekki verðið til lengdar og er öruggt að einhver hækkun verður áður en við tökum aftur upp þráðinn í janúar. Þeir sem að eru með í 90 dögunum frá september munu þó fá möguleika á að festa þetta verð áfram.- Skráning á - 90 dagar til að toppa námsárangur - sem á að hefjast 10. september er hafin.
Dagskrá veffundaVeffundir verða haldnir vikulega á mánudagskvöldum kl. 21-22 - gert er ráð fyrir um 45-50 mín. - og verða þeir teknir upp og aðgengilegir á neti í framhaldi (um 24 tímar). Þátttakendum gefst færi á að koma með fyrirspurnir á veffundinum eða með því að senda tölvupóst fyrir fundinn en einnig verða ákveðnir punktar skoðaðir sérstaklega. 13. September - 21.00-22.00 - Kynning á 90 daga námsferlinu (Námsfélaginn + markmiðasetning)
20. September - 21.00-22.00 - 21 dagur til að breyta venjum (Námsvenjur + tímastjórnun)27. September - 21.00-22.00 - Vinna í kennslustund (Glósur, spurningar, virkni, undirbúningur)4. Október - 21.00-22.00 - Lestur námsbóka (Forlestur, glósur, virkni, spurningar, undirbúningur)
11. Október - 21.00-22.00 - Frjálst val - Hvað viltu ræða - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.18. Október - 21.00-22.00 - Hvernig vinnum við í hóp?
25. Október - 21.00-22.00 - Hvernig klárum við stór verkefni? (Ritgerðir, skyndipróf, verkefni)
1. Nóvember - 21.00-22.00 - Frjálst val - Hvað viltu ræða - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.8. Nóvember - 21.00-22.00 - Halda yfirsýn í námi
15. Nóvember - 21.00-22.00 - Hvernig högum við prófundirbúningi?22. Nóvember - 21.00-22.00 - Frjálst val - Hvað viltu ræða - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.29. Nóvember - 21.00-22.00 - Hvernig tökum við próf?
6. Desember - 21.00-22.00 - Lokafyrirspurnir
|




Ferlið virkar í gegnum samtakamátt margra, markvissri kunnáttu á því hvernig við náum árangri, tæklum markmið og breytum venjum okkar. Ferlinu stjórnar Jón Vigfús Bjarnason, Skólastjóri Hraðlestrarskólans og þekkir hann það í gegnum svipuð kerfi í að ná meiri árangri í viðskiptum og þekkir því mjög vel af eigin reynslu hve miklum árangri er hægt að ná í gegnum svona árangurskerfi.
Þú færð námsfélaga í 30 daga og í sameiningu eruð þið að halda ykkur við efnið og vinna í að toppa námsárangur á tímabilinu. Stjórnandi parar saman námsfélaga og mun vera gætt að því að Menntaskólanemar og Háskólanemar séu almennt ekki paraðir saman. Aldurstakmarkið er 17 ára og verður því fylgt mjög stíft eftir. Þú færð því 3 mismunandi námsfélaga á þessum 90 dögum og ert því að kynnast nýju fólki í leiðinni.


