Hraðlestur er lykill að velgengni
Það að hafa náð færni í að lesa hraðar mun auðvelda þér alla upplýsingaöflun til frambúðar. Hvort sem þetta eru skýrslur í vinnu eða kennslubækur í námi.
"Ég get tvímælalaust mælt með þessu námskeiði fyrir hvern þann sem þarf að komast yfir ógrynni upplýsinga á mettíma og þekkja innihald þeirra vel.” - Aldís, 27 ára greinandi á Verðbréfamarkaði
Skype - hafðu samband núna...
Wiki-orð vikunnar..
| Wikiorðabók: Orð vikunnar |
| »Orð vikunnar« (Wiktionary) |
Innskráning
| ...hve langt er síðan að þú uppfærðir lestrarkunnáttu þína? |
“Ég eyddi áður of löngum tíma í lestur námsefnis miðað við árangur. Eftir að "læra að lesa" upp á nýtt hef ég margfalt aukið námsárangur minn og líka aukið frítíma, sem er ekkert nema frábært.” - Ingunn Eyjólfsdóttir, 23 ára laganemi. ...hve langt er síðan að þú uppfærðir lestrarkunnáttu þína?Þú uppfærir reglulega forritin í tölvunni og almenna þekkingu og færni á námskeiðum og í skóla... ...hve langt er síðan að þú uppfærðir lestrarkunnáttu þína? Meiri lestrarhraði - Meiri skilningur - Meiri tími - Meiri yfirsýn - eru allt einkunnarorð Hraðlestrarskólans. Hraðinn í upplýsingasamskiptum nútímans kallar einfaldlega á meiri lestrarhraða hjá okkur... - Ertu að standast þær kröfur sem nám eða starf kallar eftir? - Ertu að klára verkefnin þín? - Ertu að finna tíma fyrir fjölskyldu eða vini?
“Ég las mjög hægt sem hafði mikil áhrif á afköst í námi. Nú hef ég um það bil fjórfaldað hraðann minn og skil betur það sem ég les. Ég finn strax, eftir 3 vikur, að ég hef meiri tíma til að leika með börnunum mínum.” - Hafdís Erla Árnadóttir, 32 ára nemi. Við erum vön hröðum upplýsingasamskiptum í gegnum tölvu, farsíma, sjónvarp og persónulegum samskiptum. Þegar kemur að lestri texta hægjum við verulega á okkur og lesum á svipuðum hraða og ef við værum að lesa texta upphátt fyrir vini. Ástæðan einfaldlega sú að við lærðum að lesa með því að lesa upphátt og flest okkar höfum haldið í þann vana að þurfa að hlusta á okkur lesa textann. Á hraðlestrarnámskeiðinu kemstu að því að þetta heldur eingöngu aftur af þér og veitir þér ekki það frelsi við lesturinn sem er nauðsynlegur til að hugurinn getið safnað saman öllum þeim upplýsingum sem þar er að finna.
“Frábært námskeið. Á eftir að hjálpa mikið í háskólanáminu. Sé núna fram á að eiga mér líka eitthvað félagslíf :-)” - 25 ára háskólanemi. Þetta frelsi veitir okkur síðan meiri tíma í að sinna öðru en þessum verkefnum. Meiri tími fyrir íþróttirnar, fjölskylduna, félagslífið, áhugamálið eða í raun hvað eina sem við viljum geta sinnt betur. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar í síma 773-0100 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
“Þetta námskeið kom mér mjög á óvart og náði ég meiri árangri en ég nokkurntímann bjóst við. Mjög sniðugt fyrir fólk með börn sem er í skóla og vinnu.” - Agnes Þorleifsdóttir, 23 ára nemi.
“Gífurleg hvatning og kveikti áhuga minn á námsefninu mun meira. Miklu auðveldara að koma sér að verki. Kemst hraðar og markvissara yfir lesefni tengt vinnu og námi.” - Sigríður, 40 ára starfsmaður á endurskoðunarskrifstofu og Viðskiptafræðinemi. Aðrar greinar sem gætu hjálpað:
“Var mjög ánægður með námskeiðið. Bæði árangur og kennslu. Las frekar hægt áður og eyddi miklum tíma í lestur. En ekki lengur.” - Árni G. Gunnarsson, 25 ára rafvirki. Hvernig getur hraðlestrarnámskeið hjálpað mér?
“Hef hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á tímasparnað og á hraðlestrarnámskeiði Hraðlestrarskólans. Hef færst stóru skrefi nær því að fylgja hraða nútímans.” - Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.
|
Í fréttum
Fréttablaðið 28.9.2005Les fimmtánhundruð orð á mínútuNjáll Vikar Smárason dreif sig á hraðlestrarnámskeið í sumar og þakkar því það að hann komst inn í læknadeild í fyrstu tilraun. (sjá grein í PDF) |
| Nánar... |



