Hraðlestur er lykill að velgengni
Það að hafa náð færni í að lesa hraðar mun auðvelda þér alla upplýsingaöflun til frambúðar. Hvort sem þetta eru skýrslur í vinnu eða kennslubækur í námi.
"Ég get tvímælalaust mælt með þessu námskeiði fyrir hvern þann sem þarf að komast yfir ógrynni upplýsinga á mettíma og þekkja innihald þeirra vel.” - Aldís, 27 ára greinandi á Verðbréfamarkaði
Skype - hafðu samband núna...
Wiki-orð vikunnar..
| Wikiorðabók: Orð vikunnar |
| »Orð vikunnar« (Wiktionary) |
Innskráning
| 6 vikna námskeið |
|
|
|
|
Sex vikna hraðlestrarnámskeið. Almenn sex vikna hraðlestrarnámskeið eru haldin með reglulegu millibili á höfuðborgarsvæðinu. Þá er kennt einu sinni í viku, 2 klukkustundir í senn. Kennt er frá mánudegi til fimmtudags og er mismunandi upp á hvaða vikudag námskeið lendir. Alltaf er kennt sama vikudag og námskeið hefst á. Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum. Algengur árangur: þreföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 25-30% aukning á skilningi. Æviábyrgð fylgir hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans, auk þess fylgir árangursábyrgð Hraðlestrarskólans sex vikna námskeiðum en þá fæst námskeiðsgjald endurgreitt ef nemandi nær ekki að tvöfalda lestrarhraða sinn. VerðAlmennt verð er 34.500 kr. (Námsmenn 28.500 kr.) - Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum. - ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti. Innifalið í námskeiðagjaldi..Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), aðgangur í gegnum vef að gögnum og æfingum á netinu, vikulegar fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á.
“Námskeiðið bar tvímælalaust þann árangur sem ég vonaðist eftir og gott betur en það. Þjónusta til einstaklingins er frábær og skipulagið til fyrirmyndar. Ekki skemmdi það fyrir að fá alltaf súkkulaði. Námskeiðið margborgaði sig.” - Esther Ösp Valdimarsdóttir, 19 ára nemi. Kíktu á fleiri umsagnir frá þeim sem setið hafa námskeiðið:
“Ég las mjög hægt sem háði mér í vinnu og við lestur blaða og tímarita. Eftir sex vikna námskeið er ég mun fljótari að komast í gegnum það efni sem ég þarf að lesa í vinnunni.” - Atli Vilhjálmsson, 47 ára Þjónustustjóri.
“Fyrir námskeiðið hafði ég litla trú á að það væri raunhæft að þrefalda lestrarhraða á sex vikum. Nú hef ég hins vegar sannað fyrir sjálfum mér að það er hægt. Þessi lestrarhraði spara mér orðið mikinn tíma í náminu og lestri almennt. Ég þakka fyrir markvissa kennslu og góða fylgni skólans með árangri hjá manni.” - 27 ára nemi. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú hefur spurningar um hraðlestur og hraðlestrarnámskeið í síma 773-0100 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
Í fréttum
Blaðið 7.9.2006Boðið upp á æviábyrgðÁ sex vikum er hægt að ná viðunandi valdi til frambúðar á nýrri hraðlestrartækni. Hraðlestrarskólinn býður uppá slík námskeið þar sem þátttakendur er kennd tækni við hraðlestur og leiðbeint hvernig hægt sé að viðhalda árangrinum. (sjá grein í PDF) |
| Nánar... |






