Hraðlestrarskólinn er almennt að hefja 3-5 námskeið í hverjum mánuði en áskilur sér rétt til að fella einstaka námskeið niður ef þátttaka er ekki næg. Hraðlestrarskólinn kappkostar þó að allir fái inni á því námskeiði sem þeir óska og skrá sig á. Á álagstímum getur skráning á námskeið farið fram yfir hámarksþátttökufjölda og áskilur skólinn þá rétt til að beita hinni gullnu reglu: fyrstir koma, fyrstir fá. Þeir sem skrá sig fyrstir og hafa greitt námskeiðið halda sætum sínum, í þeirri röð. Aðrir fá tölvupóst þess efnis og býðst sæti á næsta námskeiði.
“Þegar ég kom bjóst ég alls ekki við neinum framförum en eftir 2 vikur var ég strax farin að sjá árangur og fann að ég var að ná námsefni betur og var miklu sneggri með heimavinnu. Ég í raun keypti mér tíma með því að fara á þetta námskeið.” - Anna Margrét Ásbjarnardóttir, nemi.
|
Í raun er hraðlestrarnámskeið ekki réttnefni...
...því það nær ekki að lýsa markmiði námskeiðsins nægilega vel. Markmið námskeiðsins er nefnilega ekki bara að gera þér kleift að lesa hraðar. Markmið námskeiðsins er að gera þig hæfari til að takast á við hvaða lesefni sem er. Hvert sem markmiðið er með lestrinum að þú búir yfir þeirri hæfni sem lesturinn kallar eftir. Hvort sem þessi lestur tengist náminu þínu, starfinu þínu, áhugamálinu eða afþreyingu þinni. Þess vegna blöndum við námskeiðið með hæfilega miklu aukaefni úr námstækni, tímastjórnun, minnistækni og öðru sem nýtist þér við lesturinn þinn.
“Hefði aldrei geta trúað því hvað þetta er sniðug aðferð til að lesa. Kom líka á óvart hve mikið auka efni s.s. glósutækni, minnisaðferðir, upprifjunartækni var á námskeiðinu. Þetta var eins og extra bónus sem nýtist mér rosalega vel. Takk.” - Elín G. Hólmarsdóttir, 28 ára nemi
|
|
Nánar...
|
|
|
Sex vikna hraðlestrarnámskeið. Almenn sex vikna hraðlestrarnámskeið eru haldin með reglulegu millibili á höfuðborgarsvæðinu. Þá er kennt einu sinni í viku, 2 klukkustundir í senn. Kennt er frá mánudegi til fimmtudags og er mismunandi upp á hvaða vikudag námskeið lendir. Alltaf er kennt sama vikudag og námskeið hefst á. Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum.
Algengur árangur: þreföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 25-30% aukning á skilningi.
Æviábyrgð fylgir hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans, auk þess fylgir árangursábyrgð Hraðlestrarskólans sex vikna námskeiðum en þá fæst námskeiðsgjald endurgreitt ef nemandi nær ekki að tvöfalda lestrarhraða sinn.
|
|
Lestu frekar
|
|
Þriggja vikna hraðlestrarnámskeið eru svokölluð hraðnámskeið ætluð þeim sem vilja ná góðu valdi á hraðlestrartækninni með skjótum hætti. Frábær lausn þegar stutt er í próf, skil á stórum verkefnum eða bara þegar lítill tími er til stefnu. Farið er yfir nákvæmlega sama efni og á hinum hefðbundnu 6 vikna námskeiðum Hraðlestrarskólans. Kennt er einu sinni í viku, þrjár klukkustundir í senn. Alltaf er kennt sama vikudag og námskeið hefst á. Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali, t.d. hægt að nota skáldsögur eða námsefni. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum. Markvisst er unnið að því að hver nemandi sé að ná tvöföldun á lestrarhraða sínum og hefur reynslan sýnt að það sé raunhæft markmið.
Algengur árangur: tvöföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 20-25% aukning á skilningi. Hámarksárangur á lágmarkstíma.
Æviábyrgð fylgir 3 vikna hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans. Æviábyrgðin tryggir þér rétt til að sitja námskeið aftur þegar þú hefur meiri tíma án endurgjalds, hvort sem það er til að bæta grunninn enn frekar, skerpa kunnáttuna eða bara ná enn meiri árangri.
|
|
Lestu frekar
|
Ert þú að skapa þér framtíðartækifærin?
“The most valuable asset of a 21st-century institution, whether business or nonbusiness, will be its knowledge workers and their productivity.” - Peter F. Drucker (1909-2005) úr bókinni Management Challenges for the 21st Century.
Upplýsingar eru æ mikilvægari í harðnandi samkeppni, því upplýsingum fylgja tækifæri. Tækni sem veitir okkur tækifæri til að komast yfir upplýsingar með skilvirkari, markvissari og hraðari hætti gerir okkur kleyft að ná forskoti og sjá tækifærin sem öðrum eru hulin.
Einkakennsla okkar er ætluð stjórnendum fyrirtækja og þeim sem þurfa tíma síns vegna að fá aðstoð þegar þeim hentar. Ætluð þeim aðilum sem sjá mikilvægi upplýsinga og hvað þær geta gert fyrir okkur. Tvær leiðir eru í boði og fer það alfarið eftir þörfum viðkomandi hvað hentar.
“Það kom mér á óvart hversu mikið er hægt að auka leshraðann. Frábær og einföld leið til að auka afköst í starfi.” - Auðbjörg Ólafsdóttir, 28 ára Hagfræðingur
|
|
Lestu frekar
|
|
NÝTT!! - HELGARNÁMSKEIÐ + 3 VIKNA ÆFINGARKERFI Í FJARNÁMI
Helgarnámskeið Hraðlestrarskólans er nýjung ætluð þeim er þurfa að fá grunnþekkingu í hraðlestrartækninni strax, um leið og lestrarhraði er hartnær tvöfaldaður á rétt rúmum sólarhring. Helgarnámskeiðið hefur þó að leiðarljósi mikilvægi þess að byggja upp nýja markvissa lestrarvenju til framtíðar og leiðir því þátttakanda í gegnum 3 vikna æfingarferli í framhaldinu þar sem hann er að beita nýrri lestrartækni í um klukkustundar æfingakerfi á hverjum degi í að lágmarki 21 dag. Námskeiðið hentar sérstaklega þeim er eiga erfitt með að sækja námskeið vikulega t.d. vegna búsetu eða mikils álags í vinnu eða námi. Farið er yfir nákvæmlega sama efni og á hinum hefðbundnu 6 vikna námskeiðum Hraðlestrarskólans.
Kennari leiðir þátttakendur í gegnum kennsluefnið á einni helgi - 4 klukkustundir hvorn dag. Á helgarnámskeiðinu fer kennari í gegnum grunntæknina, af hverju við lesum almennt svona hægt, hvernig hægt er að vel rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður, af hverju lestrarskilningur og lestraránægja eykst við að lesa hraðar, skoðar lestur mismunandi lesefnis, leiðir að finna aðalatriði með skjótum hætti, grunnþætti þess að glósa markvissar og mismunandi glósuleiðir í vinnu eða námi, lestur af tölvuskjá eða lófatölvum, hvernig halda megi yfirsýn yfir mikið lesefni, leiðir að halda meiri einbeitingu í lestri jafnvel undir miklu álagi, leiðir að betri undirbúningi fyrir kennslustundir og fundi, þar eru einnig farið í gegnum mismunandi æfingar sem nota megi í framtíðinni, leiðir þannig þátttakendur inn í 3 vikna æfingakerfið og afhendir ítarleg námsgögn.
|
|
Nánar...
|
|
Námskeiðagjald inn á 6 vikna hraðlestrarnámskeið, 3 vikna hraðnámskeið eða helgarnámskeið, er almennt kr. 34.500*, enda er farið í sama efni en á mismunandi hraða og er árangur almennt mjög svipaður. Frá þessu verði fá námsmenn 6.000 kr. afslátt eða námskeiðið á 28.500 kr. Einnig veitum við afslátt fyrir fjölskyldur og hópa. Æviábyrgð er á námskeiðinu, kynntu þér málið hér.
*Efling, VR og fleiri stéttarfélög styrkja sína félagsmenn og greiða hluta námskeiðagjalda.
Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur (m.a. daglegir tímar fyrir fyrirspurnir á SKYPE og aðstoð í gegnum síma og netfang), aðgangur í gegnum vef að gögnum og æfingum á netinu, vikulegar fréttir af árangri og ýmis gullkorn sem hjálpa við nám og lestur í tölvupóstinum, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf á.
ATHUGA . Ganga þarf frá greiðslu 7 dögum fyrir námskeið eða að semja með öðrum hætti um greiðslu á námskeiðagjaldi. Ekki hika við að hafa samband og fá upplýsingar um greiðsluleiðir hjá okkur.
“Frábært námskeið sem fer fram úr öllum vonum. Það er mikill metnaður og komið til móts við mann í orði og borði!” - Soffía, 23 ára nemi.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|