Hvað segja þeir sem sótt hafa hraðlestrarnámskeið um það (með leyfi viðkomandi)?
“Áhugi minn á lestri stórjókst við að lesa á meiri hraða. Mjög ánægður með skólann.”
Róbert, 27 ára hópstjóri.
“Auðveldar nám og próflestur alveg helling. Næ að klára skáldssögu á einum degi og það sama á við skólann.”
Andri Freyr Sigurpálsson, 16 ára nemi.
“Skilvirkt og fljótlegt. Fjórfaldaði hraða minn! Munar um minna í námi!”
Andri Már, 25 ára nemi.
“Hafði farið á hraðlestrarnámskeið í Borgarholtsskóla og missti fljótt niður árangur og var því skeptískur nú í byrjun. En ég er harður á því að halda betur í efnið í þetta skiptið. Ég er BS Viðskiptafræðingur og hafði aldrei farið í gegnum heila bók en það gerði ég í fyrsta skiptið í síðustu viku á 3 dögum og er að klára næstu. Námskeiðið á eftir að skila mér meistaragráðu og árangri sem ég leita eftir.”
Snorri Sigurjónsson, 25 ára Meistaranemi og Viðskiptafræðingur.
“Árangur minn eftir setu á námskeiðinu er langt framúr mínum björtustu vonum.”
Jón Óskar, 28 ára Viðskiptafræðingur.
“Ég las mjög hægt sem hafði mikil áhrif á afköst í námi. Nú hef ég um það bil fjórfaldað hraðann minn og skil betur það sem ég les. Ég finn strax, eftir 3 vikur, að ég hef meiri tíma til að leika með börnunum mínum.”
Hafdís Erla Árnadóttir, 32 ára nemi.
“Frábært námskeið sem einfaldlega skilar árangri.”
Auðunn Lúthersson, 16 ára nemi.
“Ég fer út örg sjálfri mér að hafa ekki drifið mig fyrr en nú! Þó ánægð með að hafa setið námskeiðið með 18 ára dóttur minni og þannig gefið henni forskot í sínu námi. Leiðbeinandi er skipulagður, faglegur og góður fyrirlesari. Takk fyrir mig :-)”
Sólbjörg G. Sólnes, 43 ára Hjúkka og nemi í MPH-ex.
“Hnitmiðað og markvisst nám sem nýtist strax á fyrsta degi. Klárlega vendipunktur í þekkingaröflun í komandi framtíð.”
29 ára bankastarfsmaður.
“Frábært námskeið sem fer fram úr öllum vonum. Það er mikill metnaður og komið til móts við mann í orði og borði!”
Soffía, 23 ára nemi.
“Hjálpaði mér helling. Nú kemst ég yfir mun meira efni á styttri tíma.”
Guðmundur E. Gíslason, 20 ára nemi.
“Námskeiðið hefur aukið áhuga minn á að lesa meira mér til skemmtunar, því áður las ég svo hægt að það var mikið mál að komast í gegnum ágætlega þykka bók. Námskeiðið mun án efa hjálpa mér í því háskólanámi sem ég byrja á í haust.”
32 ára tilvonandi nemi.
|