|
Er hraðlestur erfiður?
Nei, reynslan sýnir að yfir 99% þátttakenda sem leggja á sig þá vinnu sem mælst er til, sem er um ein klukkustund á dag, ná tiltölulega auðveldlega að tvöfalda lestrarhraða sinn á fyrstu 7-14 dögunum. Í raun er meðaltalsaukning nemenda okkar rúm þreföldun á lestrarhraða. Í langflestum tilfellum er þetta spurning um vilja. Viltu eiga meiri tíma í annað en lestur vinnu- eða skólagagna? Sérðu þér hag af því að komast ekki bara hraðar, heldur margfalt hraðar í gegnum efnið? Sérðu þér hag af því að ná meiri einbeitingu og meiri skilning út úr lesefninu þínu? Þá er þetta eingöngu spurning um það að þú búir yfir þeim vilja sem þarf til að taka frá tíma daglega til að þjálfa hraðlestrartæknina. Árangurinn er það fljótur að skila sér að þessi klukkustund sem mælst er til skilar sér fljótt tilbaka. Ef þú hefur það að venju að eyða um 2 stundum daglega í lestur og nærð að tvöfalda á 7 dögum, þá er klukkustundin búin að skila sér á innan við viku.
“Ég sótti hraðlestrarnámskeiðið eftir að hafa séð auglýsingu í skólanum mínum. Ég bjóst við einhverjum árangri en hann hefur verið langt umfram mínar björtustu vonir. Ég finn strax mun við heimanámið og þá sérstaklega við próflestur. Ég er ekki aðeins ánægð með aukinn lestrarhraða heldur er ég farin að ná texta betur við fyrsta lestur og grípa efnið mun betur. Takk kærlega fyrir mig.” - Ásgerður Snævarr, 17 ára nemi.
|
|
Nánar...
|
|
Er hægt að hraðlesa allt lesefni?
Lestrarhraði þátttakenda eykst í nær öllu lesefni. Þó er það svo að sumt lesefni er svo tyrfið að lestrarhraði hefur ekki takmarkað afkastagetu nemenda við að tileinka sér slíkt efni. Dæmi um slíkt efni er t.d. formúlur í stærðfræði. Þó má geta þess að eftir þátttöku á hraðlestrarnámskeiði vex afkastageta við lestur á slíku efni vegna skipulagðari og agaðri vinnubragða en áður, skilningur er jafnan töluvert meiri og einbeiting vex.
“Ég vissi ekki alveg hvað ég myndi fá út úr námskeiðinu og var aðeins hikandi áður en ég byrjaði. En árangurinn lét ekki á sér standa og nú er ég búinn að fimmfalda hraðann í meðalþungu efni og hef betri einbeitingu í þungu efni.” - Björn Rúnar Egilsson, 22 ára nemi við HÍ.
|
|
Nánar...
|
Við ábyrgjumst árangur hjá þér...
...annars færðu námskeiðið endurgreitt og hefur setið það frítt. Þetta getum við því við vitum að námskeiðið virkar. 1.700 manns sátu námskeiðið í fyrra og var meðalárangur rúm þreföldun á lestrarhraða. Æviábyrgðin tryggir þér rétt til að sitja námskeiðið aftur og aftur þegar þér hentar og árangursábyrgðin tryggir þér að þú færð námskeiðið endurgreitt ef þú tvöfaldar ekki lestrarhraða þinn.
“Skipulagt og gott námskeið. Mjög ánægð með æviábyrgðina og hyggst nýta mér hana. Æfði mig ekki nóg á meðan á námskeiðinu stóð en þetta er fjárfesting til lífstíðar og ég bý að kunnáttunni áfram og hyggst æfa mig í framtíðinni.” - Gerður Þóra Björnsdóttir, 20 ára nemi.
|
|
Nánar...
|
Er einhver lágmarksaldur inn á námskeið?
Námskeiðið situr fólk á öllum aldri og hefur aldursbilið verið allt frá 9 ára og upp í 83 ára. Meðalaldurinn er þó í kringum 27 ára. Við höfum sett lágmarksþátttökualdur hjá börnum sem koma ein á námskeiðið við 13-14 ára.
“Frábær kennsla og kennari og frábær leið til að flýta fyrir heimavinnu og skilning.” - 14 ára nemi.
|
|
Nánar...
|
|
Hvað lærir þú á hraðlestrarnámskeiði?
“Ég bætti lestrarhraða minn heilmikið, bæði í þyngri og léttari texta. Þá náði ég enn betri tökum á að draga aðalatriði fram í texta.” - Sigríður Valdimarsdóttir, 41 ára kennari.
Á hraðlestrarnámskeiðinu lærir þú ekki bara að margfalda lestrarhraða þinn. Lestur þinn verður mun markvissari og
einbeittari. Hugur þinn nær mun betur að halda einbeitingu í öllu lesefni og er sérstaklega tekið á því hvernig við getum undirbúið okkur fyrir þungan texta.
Það að geta tileinkað sér fljótt og vel þau atriði, sem máli skipta, hvort heldur þau eru í kennslubók, skýrslu, fagtímariti, dagblaði eða öðru lesefni, getur skipt sköpum fyrir þig. Þessi möguleiki mun opnast þér við góða ástundun á námskeiðinu. Einnig munu aukin afköst skapa þér ný tækifæri í námi og vinnu. Því er óhætt að segja að hraðlestrarnámskeið veiti þér forgjöf sem nýtist í öllum þáttum lífs þíns.
“Fyrir námskeiðið vildi ég aðeins bæta lestrarhraðann. En það sem kom mér mest á óvart var að ekki eingöngu les ég hraðar, heldur allt öðruvísi. Ég les með betri skilningi og kann mun betur að vinna úr efninu eftir lestur sem hefur í för með sér margfalt meiri skilning.” - Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |