gototopgototop

Hraðlestur er lykill að velgengni

Það að hafa náð færni í að lesa hraðar mun auðvelda þér alla upplýsingaöflun til frambúðar.  Hvort sem þetta eru skýrslur í vinnu eða kennslubækur í námi.

"Ég get tvímælalaust mælt með þessu námskeiði fyrir hvern þann sem þarf að komast yfir ógrynni upplýsinga á mettíma og þekkja innihald þeirra vel.” - Aldís, 27 ára greinandi á Verðbréfamarkaði

Skype - hafðu samband núna...

Wiki-orð vikunnar..

Innskráning



Hraðlestrarskólinn - upplýsingar um skólann og hraðlestrarnámskeiðin
Hér má finna ýmsar upplýsingar um Hraðlestrarskólann, sögu hans og helstu merkisatriði.

Um Hraðlestrarskólann Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hraðlestrarkennsla í rúm 30 ár

Hraðlestrarskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1978 og hefur haldið hraðlestrarnámskeið árlega síðan. Á hverju ári eru að jafnaði haldin 2-3 námskeið mánaðarlega.

Skrifstofur skólans eru í Borgarnesi en við kennum aftur á móti út um allt land. Haldin eru 2-3 almenn námskeið í mánuði en einnig komum við og höldum námskeið í skólum og fyrirtækjum víðsvegar um landið. Eigendur Hraðlestrarskólans eru hjónin Jón Vigfús Bjarnason og Svanfríður Linda Jónasdóttir og hafa þau rekið skólann frá árinu 2005. Jón Vigfús er kennari á hraðlestrarnámskeiðunum.

“Frábært námskeið og framúrskarandi kennari! Ég náði að sjöfalda lestrarhraða minn á aðeins 14 dögum! Nú get ég loksins lesið ýmsar bækur sem legið hafa á hillunni allt of lengi!” - Bjarni Valur Guðmundsson, 30 ára Íslensku- og bókmenntafræðingur.

“Þetta námskeið er snilldin ein. Er svo sannarlega búnn að bæta lestrarhraðann, 3x - ekki slæmt. Frábær kennari, vel undirbúinn og með allt efnið á hreinu! - og ekki skemmir fyrir að fá prins og kók!” - Haraldur Ólafsson, 21 ára nemi í Hraðbraut.

Kennari:

Aðalkennari á hraðlestrarnámskeiði er:

jovvi_standandi_tomt_200x384Jón Vigfús Bjarnason

Áhugi hans á hraðlestrartækninni kom til er hann var við nám í Viðskiptalögfræði á Bifröst og sá hvernig hraðlestrartæknin auðveldaði honum verulega að komast yfir allt lesefni í náminu.  Sjálfur hefur hann lesið töluvert í gegnum tíðina en í dag les hann um 5-6 bækur vikulega.  Nokkuð sem væri ekki möguleiki nema með hjálp hraðlestrartækninnar.  Á meðan að hann var í námi á Bifröst - tók hann að sér að vera stuðningsfulltrúi nemenda og var sem slíkur að aðstoða samnemendur við námið.  Hann hefur einnig haldið fjölda námstækninámskeiða undanfarin ár.

Í starfi sínu hefur hann aukið talsvert svokallaða fyrirtækjaþjálfun þar sem hann fer með fyrirtækjahópa og einstaklinga í einkaþjálfun í gegnum hraðlestrarkennslu, tímastjórnun, markmiðasetningu.  Hann hefur réttindi sem Productivity Coach og var sem slíkur einn af stofnendum Heimssamtaka þeirra (IAPC).  Hann er einnig með réttindi sem iMindMap Master Trainer og kennir sem slíkur notkun í hugarkortum á tölvum - hvort sem það er í námi eða vinnu í gegnum Hugarkort.is.  Einnig er hann með réttindi sem Guerrilla Marketing Coach - en þar leiðir hann fyrirtækjahópa og einstaklinga í litlum og meðalstórum fyrirtækjum í gegnum það hvernig þessi fyrirtæki geta komið sér á framfæri og markaðsett sig með skýrari hætti.

  • Jón Vigfús er með 3 bækur um hraðlestur í vinnslu og er útgáfa þeim ætluð árið 2011-2012.
  • Hann vinnur nú með Brian Tracy  að nýrri bók - Counter Attack: Business Strategies for Explosive Growth in the New Economy - sem væntanleg er í verslanir 2010-2011.  (Sjá fréttatilkynningu þess efnis)
  • Hann er verður einnig einn höfunda bókarinnar - The Next Big Thing: 30 Business Trends You Can't Afford to Ignore and the Entrepreneurs Who are Driving Them! - sem er væntanleg í verslanir 2010-2011

Ef þú vilt hafa samband við Jón Vigfús getur þú skotið pósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , bætt honum inn á SKYPE sem jonvigfus eða tengst honum á Facebook - www.hradlestrarskolinn.is/jonvigfus

 

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þið viljið óska eftir námskeiði í fyrirtækinu þínu eða skólanum þínum. Hægt er að hafa samband í síma 773-0100 eða netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

“Frábært námskeið með mjög góðum kennara sem hefur mikla þekkingu á efninu. Hjálpar einnig mikið að hafa farið yfir glósutækni, tímastjórnun og fleira. Námskeiðið stóðst mínar væntingar :-)” - Birna Dröfn Birgisdóttir, 23 ára Meistaranemi í alþjóðaviðskiptum.

Þið megið hafa samband við mig..
Fullt nafn (*)
Please type your full name.
Netfang (*)
Invalid email address.
Sími
Invalid Input
Fá upplýsingar um (*)
Please tell us how big is your company.
Athugasemdir
Invalid Input
Hvernig viltu að við höfum samband við þig? (*)
Hvenær viltu að við höfum samband (*)
Please select a date when we should contact you.
  

“Mér fannst þetta námskeið það besta sem ég hef farið á hingað til. Lestrarhraðinn þrefaldaðist og skilningur minn var frábær í lok námskeiðsins. Kennari var góður og náði fullkomlega til manns. Þetta námskeið er frábærlega skipulagt og hugsað vel um hagsmuni manns. Mér finnst ég vera orðinn partur af "hraðlestrarfjölskyldu"” - 17 ára nemi.

 

 
Jón Vigfús - eigandi og kennari Hraðlestrarskólans að skrifa bók með Brian Tracy Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Vigfús Bjarnason   
Miðvikudagur, 11. ágúst 2010 15:02

brian_in_gardenNÝTT - Eigandi Hraðlestrarskólans og kennari á námskeiðunum að vinna bók með Brian Tracy

Brian Tracy er mörgum Íslendingum kunnur frá ófáum fyrirlestrum sem hann hefur haldið hér á landi á undanförnum áratugum.  Brian Tracy hefur skrifað yfir 45 bækur, en margar þeirra hafa vermt metsölulista um allan heim.  Hann hefur verið ráðgjafi yfir 1.000 fyrirtækja og haldið yfir 4.000 fyrirlestra eða ræður fyrir um 4.000.000 manns í 42 löndum.  Hægt er að sjá frekari upplýsingar um Brian Tracy hér

Síðast uppfært: Laugardagur, 14. ágúst 2010 13:36
Nánar...
 
Hraðlestrarskólinn ábyrgist árangur og ánægju - alla ævi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hraðlestrarskólinn ábyrgist árangur og ánægju - alla ævi

abyrgd_aevi_100_200x200Æviábyrgð

Þegar þú greiðir fyrir hraðlestrarnámskeið hjá Hraðlestrarskólanum öðlast þú ÆVIÁBYRGÐ inn á námskeiðið til frambúðar.  Við leggjum allt okkar í að þér gangi vel - ekki bara í dag - ekki bara á morgun - ekki bara á meðan að á námskeiði stendur - heldur alla ævi.  Þú átt að geta bætt kunnáttu og skerpt á færni þinni eins oft og þú telur þörf á yfir ævina.  Við höfum engan áhuga á að selja þér sama námskeiðið aftur þó þú hafir ekki náð að festa allt efnið í sessi þegar þú situr námskeiðið í fyrsta sinn.  Hraðlestrarskólinn kallar æviábyrgðina hjá sér "virka símenntun" - og þú átt hana skilið.

Innifalið í æviábyrgð er aðgangur að kennara í gegnum tölvupóst og síma ef þú ert að taka upp æfingar heima við á eigin spýtur og nýtir kennslugögn af námskeiði en hefur gleymt einhverju og þarft á hjálp okkar að halda.  Engu skiptir hvort þú þarft hjálp okkar að halda eftir 2 mánuði eða 2 ár.  Þú hefur einnig ævilangan aðgang að nemendavef Hraðlestrarskólans og þeim æfingum sem þú þarft að nota til að halda hraðlestrarkunnáttu þinni við til frambúðar.

abyrgd_arangur_200x200

Árangursábyrgð

Okkur finnst þó ekki nóg að þú hafir æviábyrgð - því hvað hefur þú svo sem við æviábyrgð að gera ef þú nærð ekki árangri á námskeiðinu?  Ég þekki árangurinn af eigin raun - því ég hef setið námskeiðið.  Ég hef kennt þúsundum Íslendinga að margfalda lestrarhraðann og veit því að þetta ber árangur.  Þeir nemendur sem hafa setið námskeiðið - þekkja árangurinn.  Ef þú hefur ekki setið námskeiðið - þá þekkir þú það ekki.  Ekkert vandamál.  Því bjóðum við upp á ÁRANGURSÁBYRGÐ - og gildir hún einfaldlega þannig að ef þú nærð ekki að tvöfalda lestrarhraða þinn á námskeiðinu - þá færðu einfaldlega endurgreitt.  Þurfum ekki að flækja málið að óþörfu - og því gildir árangursábyrgðin núna af öllum námskeiðum Hraðlestrarskólans.  Ef þú sinnir námskeiðinu, mætir í tímana, vinnur heimavinnuna og skilar árangri til kennara vikulega en nærð ekki að tvöfalda lestrarhraða þinn - þá færðu námskeiðagjaldið að fullu endurgreitt.

abyrgd_anaegju_200x200Ánægjuábyrgð

Frá og með ágúst 2010 bætum við svo um betur og bjóðum upp á 36 mánaða ÁNÆGJUÁBYRGÐ.  Við leggjum það mikinn metnað í námskeiðið okkar að við erum ekki sátt ef þú nærð bara að auka lestrarhraðann í einhverjar vikur eftir námskeiðið.  Þú átt að finna fyrir viðvarandi árangri til frambúðar - þannig byggjum við upp námskeiðið - og þannig virkar hraðlestrartæknin.  Þegar þú sækir námskeiðið okkar viljum við að þú náir að halda nýjum auknum lestrarhraða til frambúðar, nýtir aðhaldsferli okkar síðan til að festa þennan hraða í sessi og auka hann enn frekar í framtíðinni.  Ef þú ert aftur á móti ekki ánægður eða ánægð með árangur þinn eftir 36 mánuði - þú sinntir námskeiðinu, þú mættir í tímana, þú vannst heimavinnuna, þú skilaðir árangrinum til kennara vikulega og þú hefur setið að lágmarki 2 upprifjunarnámskeið - en nærð samt ekki þeim  árangri sem þú varst að leita eftir - þá virkar ánægjuábyrgðin einfaldlega þannig að þú færð námskeiðið endurgreitt. Punktur.

abyrgd_krakka_200x200Krakkaábyrgð

Frá og með september 2010 hefjum við námskeið fyrir aldurshópinn 9-12 ára - Hraðlestrarkrakkar - og auðvitað gildir KRAKKAÁBYRGÐ á því námskeiði.  Krakkaábyrgðin gildir einfaldlega þannig að þátttakendur á námskeiðinu  - Hraðlestrarkrakkar  - geta tekið námskeiðið eins oft og þau vilja eða telja þörf á fram til 13 ára aldurs.

Ekki hika við að hafa samband við mig ef þú hefur einhverjar spurningar um ábyrgðina okkar - skjóttu þeim til mín í tölvupósti - á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringdu í 773-0100

 


Við ábyrgjumst árangur þinn

Kynning á námskeiði

Í fréttum

Morgunblaðið 14.7.2008

"Öll lesfög mun auðveldari viðureignar en áður"

...Aðspurður segist Magnús lítið sem ekkert hafa dregið úr miklum leshraða sínum við próflesturinn. Hann þeytist á sama hraða yfir námsbækurnar og annað lesefni. (sjá grein í pdf)

Nánar...

Auglýsingar

Kynningarslóðir:
3 vikna námskeið
Hraðlestur á 3 vikum - fyrir þá sem vilja árangur STRAX.
Helgarnámskeið
Hartnær tvöföldun á lestrarhraða á 24 tímum - fyrir þá sem vilja árangur NÚNA.
Hvernig á að lesa námsbók?
LOKSINS - framhaldsnámskeið sem fer dýpra í námsbókalestur.
Hvernig á að nota iMindMap í námi?
LOKSINS - framhaldsnámskeið sem fer dýpra í glósutæknina.

Skráðu þig á biðlistann okkar

..vertu í forgangi

Skráðu þig á biðlista og þá færðu fréttir af nýjum námskeiðum beint í pósthólfið þitt og ert í forgangi á ný námskeið.

Fornafn (*)

Invalid Input
Eftirnafn

Invalid Input
Netfang (*)

Invalid Input



Skrá mig fyrir fréttabréfinu..

..með á nótunum?

Viltu fá gullmola um hraðlestur, námstækni og annað er tengist lestri. Vertu þá áskrifandi að fréttabréfinu okkar - Hraðlestrarlykillinn.

Fornafn (*)

Invalid Input
Netfang (*)

Invalid Input



SkráningUmsagnirHraðlesturNámskeiðinFramhaldsnámskeiðNæstu námskeið
JoomlaWatch Stats 1.2.9 by Matej Koval