Í raun er hraðlestrarnámskeið ekki réttnefni...
...því það nær ekki að lýsa markmiði námskeiðsins nægilega vel. Markmið námskeiðsins er nefnilega ekki bara að gera þér kleift að lesa hraðar. Markmið námskeiðsins er að gera þig hæfari til að takast á við hvaða lesefni sem er. Hvert sem markmiðið er með lestrinum að þú búir yfir þeirri hæfni sem lesturinn kallar eftir. Hvort sem þessi lestur tengist náminu þínu, starfinu þínu, áhugamálinu eða afþreyingu þinni. Þess vegna blöndum við námskeiðið með hæfilega miklu aukaefni úr námstækni, tímastjórnun, minnistækni og öðru sem nýtist þér við lesturinn þinn.
“Hefði aldrei geta trúað því hvað þetta er sniðug aðferð til að lesa. Kom líka á óvart hve mikið auka efni s.s. glósutækni, minnisaðferðir, upprifjunartækni var á námskeiðinu. Þetta var eins og extra bónus sem nýtist mér rosalega vel. Takk.” - Elín G. Hólmarsdóttir, 28 ára nemi
|
|
Nánar...
|
|
Námskeið - Hvernig á að nota iMindMap í námi? - Dagsnámskeið - í samvinnu við Hugarkort.is
Námskeiðið er sjálfstætt framhald af hraðlestrarnámskeiði en ekki er þörf á því að hafa setið hraðlestrarnámskeið til að hafa not af þessu námskeiði. Það er þó engin spurning að þeir sem hafa setið hraðlestrarnámskeið fá meira út úr því vegna þess að hér er farið enn ítarlegar í þær glósuleiðir sem bent er á þar.
Markmið námskeiðs...
...er að gera notanda iMindMap kleift að takast á við hvaða hvaða efni sem er og vinna hnitmiðað hugarkort út frá því efni. Hugarkort sem er síðan hægt að rifja upp með reglulegu millibili og þannig ýta við huganum. Nemandi notar sitt eigið námsefni og vinnur það heimanám sem honum hefur verið sett fyrir í skólanum - hann er því að slá tvær flugur - læra fyrir námskeiðið og læra fyrir skólann.
|
|
Nánar...
|
|
Sex vikna hraðlestrarnámskeið. Almenn sex vikna hraðlestrarnámskeið eru haldin með reglulegu millibili á höfuðborgarsvæðinu. Þá er kennt einu sinni í viku, 2 klukkustundir í senn. Kennt er frá mánudegi til fimmtudags og er mismunandi upp á hvaða vikudag námskeið lendir. Alltaf er kennt sama vikudag og námskeið hefst á. Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum.
Algengur árangur: þreföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 25-30% aukning á skilningi.
Æviábyrgð fylgir hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans, auk þess fylgir árangursábyrgð Hraðlestrarskólans sex vikna námskeiðum en þá fæst námskeiðsgjald endurgreitt ef nemandi nær ekki að tvöfalda lestrarhraða sinn.
|
|
Lestu frekar
|
|
Námskeið - Hvernig á að lesa námsbók? - Dagsnámskeið
Námskeiðið er beint framhald af hraðlestrarnámskeiði en nauðsynlegt er fyrir þátttakanda að hafa setið 3 eða 6 vikna hraðlestrarnámskeið eða helgarnámskeið Hraðlestrarskólans til að hafa not af þessu námskeiði.
Markmið námskeiðs...
...er að gera nemendum almennt kleift að takast á við hvaða hvaða námsefni sem er og vinna betur og markvissar úr því efni. Farið er í glósur, prófundirbúning, styrkleika í námi, undirbúning fyrir kennslustund o.fl. Nemandi notar sitt eigið námsefni og vinnur það heimanám sem honum hefur verið sett fyrir í skólanum - hann er því að slá tvær flugur - læra fyrir námskeiðið og læra fyrir skólann.
|
|
Nánar...
|
|
Þriggja vikna hraðlestrarnámskeið eru svokölluð hraðnámskeið ætluð þeim sem vilja ná góðu valdi á hraðlestrartækninni með skjótum hætti. Frábær lausn þegar stutt er í próf, skil á stórum verkefnum eða bara þegar lítill tími er til stefnu. Farið er yfir nákvæmlega sama efni og á hinum hefðbundnu 6 vikna námskeiðum Hraðlestrarskólans. Kennt er einu sinni í viku, þrjár klukkustundir í senn. Alltaf er kennt sama vikudag og námskeið hefst á. Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali, t.d. hægt að nota skáldsögur eða námsefni. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum. Markvisst er unnið að því að hver nemandi sé að ná tvöföldun á lestrarhraða sínum og hefur reynslan sýnt að það sé raunhæft markmið.
Algengur árangur: tvöföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 20-25% aukning á skilningi. Hámarksárangur á lágmarkstíma.
Æviábyrgð fylgir 3 vikna hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans. Æviábyrgðin tryggir þér rétt til að sitja námskeið aftur þegar þú hefur meiri tíma án endurgjalds, hvort sem það er til að bæta grunninn enn frekar, skerpa kunnáttuna eða bara ná enn meiri árangri.
|
|
Lestu frekar
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 5 |